Þjónusta
Upplýsingar
Sími: 563 8002
Netfang: service@marel.is
Þjónustuborðið er opið frá 8 - 17 alla virka daga.
Utan þess tíma bjóðum við viðskiptavinum sem þess óska upp á neyðarþjónustu, nánari upplýsingar service@marel.is eða í síma 563 8002
Þjónustusvið Marel veitir viðskiptavinum og dótturfélögum Marel Food Systems þjónustu og stuðning. Sem dæmi má nefna uppsetningu á tækjum og hugbúnaði, þjálfun viðskiptavina, varahlutaþjónustu, aðra aðstoð og þjónustu.
Marel býður viðskiptavinum sínum upp á þjónustu- og viðhaldssamninga, aðlagaða að þörfum hvers og eins. Þjónustubeiðnum, fyrirspurnum og beiðnum um aðra aðstoð skal beint til þjónustufulltrúa Marel, s. 563-8002 eða service@marel.is
Handbækur
Hægt er að panta aukalegar handbækur.
Pantið með því að senda tölvupóst á:
Þjónusta með fjartengingu (Marel Remote Assistance)
Þarftu lausn strax á tæknilegum vandamálum sem kunna að koma upp? Með fjartengibúnaði getur þjónustufulltrúi okkar tekið yfir stjórn á tölvunni þinni, mús og lyklaborði, og aðstoðað við að finna lausn á vandamálinu.
Einfalt
Smelltu á annan hvorn hnappinn hér að neðan til að tengjast.
Ef hnappurinn er rauður á litinn þýðir það að enginn þjónustufulltrúi er viðlátinn. Þú getur engu að síður sent inn beiðni um aðstoð með því að fylla út eyðublaðið sem opnast. Við svörum öllum beiðnum innan tveggja virkra daga.
Ef hnappurinn er grænn á litinn þýðir það að þjónustufulltrúar eru reiðubúnir að aðstoða þig.
Hvernig þetta virkar:
Veldu tækja- eða hugbúnaðarþjónustu eftir því sem við á. Ef þú ert ekki viss, veldu þann kost sem þér finnst eiga frekar við.
Fylltu út eyðublaðið sem birtist. Nauðsynlegt er að fylla út alla reitina með réttum upplýsingum til þess að fjartenging komist á.
Þegar búið er að fylla út alla reiti, smelltu þá á “senda” hnappinn neðst á eyðublaðinu.
Spjallgluggi mun þá opnast sem þú getur notað til að eiga samskipti við þjónustufulltrúann. Með þínu leyfi getur hann síðan fjartengst tölvunni þinni. Vinsamlegast athugið að öll samtöl og allar fjartengingar eru teknar upp og skráðar.
Ná sambandi við tiltekinn þjónustufulltrúa
Til að ná sambandi við tiltekinn þjónustufulltrúa þarftu fyrst að fá tengingarnúmer frá honum.
Þú slærð svo inn inn teningarnúmerið þegar þú ert beðin(n) um það og smellir á „Send“


