Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Skipaþjónusta

M2200Við hjá Marel höfum átt í náinni samvinnu við sjávarútveginn á Íslandi í um aldarfjórðung og höfum byggt upp dýrmæta reynslu og sérþekkingu á þessum tíma. Við leggjum mikið upp úr því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fyrsta flokks þjónustu til að tryggja það að búnaðurinn frá Marel skili hámarks árangri og arðsemi.

Nú er svo komið, hins vegar, að Marel búnaðurinn sem er í notkun í dag er í sumum tilfellum kominn nokkuð til ára sinna. Þó að þessi búnaður sé löngu búinn að sanna gildi sitt bæði hvað gæði og áreiðanleika varðar, er í mörgum tilfellum orðið erfitt að fá íhluti í hann. Það er því tvímælalaust orðið tímabært að skipta út búnaði sem búinn er að skila góðu verki en er kominn á tíma. Þess vegna er það okkur ánægja að bjóða viðskiptavinum sem eru með eldri vogir og flokkara frá Marel upp á uppfærslur á búnaðinum. Við bjóðum í dag upp á eftirfarandi lausnir:

M2000 stjórntölva („haus“)

M2000M2000 er búin að sanna gildi sitt síðan 1988 en það er orðið sífellt erfiðara að þjónusta hana. Það getur því tekið lengri tíma að laga M2000 ef eitthvað kemur upp á. Eins er rétt að hafa í huga að eftir 8-10 ára notkun er hætt við að lóðningar fari að losna í skipum.

Lausnir:

  • Fyrir flestar vogir er lausnin að uppfæra í M1100 eða M2200, en þær leystu M2000 af hólmi í vöruúrvali okkar fyrir nokkrum árum síðan.
  • Fyrir flokkara með M2000 er lausnin að uppfæra í M3000 (það þarf þá einnig að skipta út PLC stýrieiningum).
  • Fyrir Póls flokkara er lausnin að uppfæra í M3000 (það þarf þá einnig að skipta út vigtareiningu og PLC stýrieiningum).
  • Fyrir Póls vogir þarf einungis að skipta út vogarhausnum fyrir M1100 eða M2200.

M3000 stjórntölva

Í þeim skipum þar sem M3000 er notaður til að stýra flokkara er mælt með að V37 varabretti sé til staðar, með viðeigandi stillingum og forritum, þar sem bretti geta bilað ef alvarlegar truflanir verða í rafkerfinu. Slík ráðstöfun getur sparað mikinn tíma og verðmæti og losað togara við landstím sem hefði í för með sér stöðvun á framleiðslu. Til að auka rekstraröryggi tækjanna enn frekar bjóðum við einnig upp á sérsniðna varahlutapakka.

Til að fá nánari upplýsingar um ofangreint, hafðu samband við Valdimar Gestsson (valdimar.gestsson@marel.com). Við komum í heimsókn, skoðum búnaðinn og gerum tilboð sniðið að þínum þörfum.

Read this in English



Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0