Varahlutir
Breytingar á varahlutaþjónustu
Sú breyting hefur orðið á að Marel er ekki lengur með varahlutalager á Íslandi.
Aðal lager fyrirtækisins er nú staðsettur í Árósum í Danmörku og er afgreiðslutími á varahlutum þaðan 24 tímar. Eftir sem áður eru varahlutir sem líklegt er að íslenskir viðskiptavinir okkar þurfi helst á að halda til staðar í Garðabæ.
Viðskiptavinum okkar býðst einnig að semja um aðgang að nauðsynlegum varahlutum til að tryggja rekstraröryggi. Á þetta aðalega við dýrari hluti eins og servo mótora, servo stýringar og fleira.

