Um Marel
Upplýsingar
Marel ehfAusturhrauni 9
210 Garðabær
Kennitala: 640707-0540
Skrifstofan er opin virka daga frá klukkan níu til fimm.
Sími: 563 8000
Fax: 563 8001
Netfang: info.is@marel.com
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa um 3.500 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Hjá Marel finnurðu allt sem þú þarft á einum stað. Eftir kaup á nokkrum framúrskarandi fyrirtækjum á undanförnum árum býður Marel upp á heimsþekkt vörumerki á borð við AEW Delford, Carnitech, Dantech, Scanvaegt, Stork og Townsend. Vöruframboð fyrirtækisins spannar allt framleiðsluferlið, frá frumvinnslu hráefnis til pökkunar í neytendaumbúðir.
Marel býður upp á mikið úrval háþróaðra tækja og hugbúnaðar, þ.á.m. vogir, flokkara, skurðarvélar, sagir, eftirlitsbúnað, beintínsluvélar, frysta, pökkunar- og merkingarvélar, svo eitthvað sé nefnt. Þá býður fyrirtækið upp á samþætt heildarkerfi sem henta á öllum helstu sviðum matvælavinnslu og sem sniðin eru að þörfum viðskiptavina.
Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel umbreyst úr sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Fyrirtækið leggur að meðaltali 5-6% af veltu í rannsóknar- og þróunarstarf á ári hverju, sem er hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni. Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir frá Marel gera framleiðendur kleift að hámarkað nýtingu, afköst og arðsemi.
Frá upphafi hefur Marel lagt sérstaka áherslu á gæði og áreiðanleika, en árið 1997 fékk fyrirtækið ISO 9001 vottun á gæðakerfi sínu fyrir vöruþróun, sölu, framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini.
Sjá einnig:

