Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fjölþjóðleg arfleifð

Marel er sprotafyrirtæki sem á uppruna sinn í Háskóla Íslands en þeir vísindamenn og frumkvöðlar sem þróuðu fyrstu rafeindavogina við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands árið 1978 gerðu sér eflaust ekki í hugarlund hvað starf þeirra mundi bera ríkulegan ávöxt.

Marel var formlega stofnað árið 1983, um það leyti sem örtölvu- og rafeindatækni var farin að umbylta vinnsluaðferðum í matvælaiðnaði. Mikil tæknivæðing hefur átt sér stað í matvælaiðnaði á undanförnum árum og það er staðföst stefna Marel að halda áfram sem endranær að skipa framvarðarsveitina í þessum ört vaxandi og spennandi iðnaði.

Eftir stefnumarkandi yfirtökur á undanförnum árum er Marel í dag alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í um 30 löndum.

Við erum stolt af fjölþjóðlegri arfleifð okkar sem nær allt aftur til ársins 1932. Við eigum rætur að rekja til eftirfarandi fyrirtækja en sameining þeirra hefur skapað það fyrirtæki sem Marel er í dag:


Bandaríkin:
GAMCO og TOWNSEND
Bretland: AEW, DELFORD, GAINSBOROUGH, SORTAWEIGH og THURNE
Danmörk: CARNITECH, CP FOOD, NORFO og SCANVAEGT
Frakkland: NIJAL
Holland: BAAYENS, LANGEN, MARKERT, PROTECON, STORK BRONSWERK, STORK PMT og TITAN
Ísland: MAREL og PÓLS
Singapore: DANTECH
Þýskaland: GEBA og TVM


Það felst mikill styrkur í þessum fjölbreytileika. Hann er uppspretta hugmyndaauðgi og sköpunarkrafts.




Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0