Nemendaverkefni
Hugmyndir að nemendaverkefnum í samvinnu við Marel
Eftirtalin verkefni eru dæmi um viðfangsefni sem tengjast starfsemi Marel og kunna að vera áhugaverð fyrir nemendur á háskólastigi. Umfang þeirra og dýpt má skilgreina með tilliti til nemandans, þ.e. hvort um sé að ræða sumarstarf, áfangaverkefni í námi, lokaverkefni, meistaraverkefni eða doktorsverkefni. Þá eru námssvið og verkefnalýsingar aðeins til leiðbeiningar. Listinn er ekki tæmandi yfir þau viðfangsefni sem koma til greina. Áhugasamir nemendur eru hvattir til að gera tillögur að breytingum eða leggja til önnur verkefni.
Sendið ábendingar og verkefnistillögur til Kristinn Andersen (kristinn.andersen@marel.com).
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði, efnafræði |
Kristinn Andersen |
Þétting og myndun raka innan á veggjum stálskápa í köldu umhverfi s.s. í matvælavinnslu, er rannsökuð. Gerðar eru tilraunir og mælingar til að meta þéttinguna og þróað líkan sem lýsir henni með tilliti til aðstæðna. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Kristinn Andersen |
Þegar vatn safnast upp inni í lokuðum rafskápum í matvælavinnslu þarf að vera unnt að hleypa því út. Í verkefninu eru hannaðir stútar eða opnanir sem hleypa vatni auðveldlega út, en hindra jafnframt að vatn berist inn. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Kristinn Andersen |
Í sjálfvirkum færibandavogum er nauðsynlegt að vigtarpallurinn sé í plani við inntöku og frátökuborð við vigtarpallinn, til að ná sem bestri vigtarnákvæmni. Eftir framleiðslu og eftir flutning á vigtareiningunum þarf að stilla vigtarpallinn handvirkt í plan eftir leiðbeiningum. Hugmyndin með þessu verkefni er að setja skrefmótara á planstillingu vigtarpallsins, greina vigtarmerkin og planstilla vigtarpallinn sjálfvirkt eftir vigtarmerkjunum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsi |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Kristinn Andersen |
Staða róbótatækni fyrir framleiðsluferli Marel verður metin. Nú þegar hefur Marel tekið róbóta í notkun fyrir rafsuðu. Hér verða frekari útfærslur við rafsuðu skoðaðar, auk þess sem fleiri notkunarsvið fyrir róbóta í framleiðsluferlinu verða fundin og nánari grein gerð fyrir hönnunarforsendum, ávinningi og öðrum þáttum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Kristinn Andersen |
Ennþá er notkun róbóta í fiskverkun nánast hverfandi lítil. Áhugi er á að nota róbóta til að raða saltfiski í kassa. Kanna þarf hvers konar róbótar henta í slíka vinnu, m.t.t. stærðar, stýrieiginleika, þrifahæfni, seltuþols, vatnsþols o.fl . Þá er ekki augljóst hvernig róbótinn á að grípa saltfiskinn, sem getur verið óreglulegur í lögun, tiltölulega stór, þurr, saltþakinn og hrjúfur. Kanna þarf því hvers konar gripkló eða sogskálar henta í þessa notkun. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, eðlisfræði |
Kristinn Andersen |
Í fiskvinnslulínum eru notuð ljósaborð sem hjálpa starfsfólki við að greina aðskotahluti, s.s. orma og roðflyksur í fiskflökum. Þessi ljósaborð eru venjulega baklýst með flúrperum sem krefjast tíðrar endurnýjunar og viðhalds. Í verkefninu eru kannaðir aðrir kostir á baklýsingu, t.d. með ljósadíóðum eða annarri lýsingu sem krefst minna viðhalds. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, eðlisfræði, stærðfræði |
Ingólfur Gauti Arnarson |
Verkefnið felst í að greina eitt kjúklingakerfi, eitt kjötkerfi og eitt fiskkerfi. Tilgangurinn er að greina gögnin í því markmiði að sjá hvort ekki megi beita aðferðum tölfræði, taugagreiningar, bestunar eða annarra reikniaðferða til vinna verðmætar upplýsingar úr gögnum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Stærðfræði, verkfræði, eðlisfræði |
Jón Birgir Gunnarsson |
Tölfræðilíkan verður sett upp í Excel til þess að hjálpa viðskiptavinum og öðrum að skilja betur og greina orsakir og afleiðingar frávika. Líkanið þarf að taka á helstu þáttum sem koma við sögu í matvælavinnslukerfum Marel svo sem vigtar- / skurðar- / samvals- og pökkunarnákvæmni. Taka þarf tillit til margvíslegra þátta s.s. svokallaðra e-pökkunar reglna. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Valdimar Gestsson |
Mæla þarf þjónustustig vegna skipulagsbreytinga í fyrirtækinu (tilkomu vörusetra og iðnaðarsetra). Þjónustumenn, sem sinna tæknilegu viðhaldi og eftirliti, verða væntanlega að mestu staðsettir í vörusetrum. Ekki er fyrirsjáanlegt sérstakt þjónustusetur eins og er í dag. Til að þessar breytingar skili sér eins og best er á kosið þarf að mæla árangur fyrsta árið. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Valdimar Gestsson |
Í dag er hráefni matað inn á vinnslulínur með mismunandi hætti og í sumum tilvikum er erfitt að stjórna álagi á starfsmenn í gegnum innmötunarbúnað. Hugmyndir hafa komið fram um að setja vogir í hvert vinnslustæði á línunum, og nota vigtunina til að stjórna mötuninni inn á línurnar. Í verkefninu á að kanna mismunandi leiðir til innmötunar, t.d. með því að nota vogir á hverju vinnslustæði. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Markaðsfræði, viðskiptafræði |
Sigurjón Elíasson |
Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil samþjöppun alþjóðlegra matvælaframleiðenda í próteiniðnaði. Þessi samþjöppun er ekki aðeins á milli nærliggjandi landa, heldur hafa fyrirtæki verið að fjárfesta í öðrum heimsálfum. Í verkefninu væru kortlagðar helstu samþjappanir síðastliðið ár, litið á hugsanlegar sameiningar á næstu tveimur árum og áhrif þessara sameininga á framleiðslu- og gæðastýringu fyrirtækjasamsteypunnar. Skoðað verður hvaða áhrif þessar sameiningar hafa á fjárfestingarstefnu viðkomandi stórfyrirtækja og hvernig tækjaframleiðendur líkt og Marel geta brugðist við og nýtt sér þessar sameiningar. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Viðskiptafræði |
Ragnar Guðmundsson |
Marel á í viðskiptum við vinnslufyrirtæki í ólíkum iðngreinum um heim allan og er þannig virkt á fjölda markaða. Þar sem heimurinn breytist hratt er nauðsynlegt að uppfæra reglulega þær upplýsingar sem við höfum um þessa markaði og taka til skoðunar nýja markaði eftir þörfum. Verkefnið felst í að taka þátt í þessu starfi með Marel. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Matvælafræði |
Sigurjón Elíasson |
Stærstu skyndibitakeðjur í heimi státa af öflugu innra gæðakerfi um hráefniskaup og framleiðslu. Í ljósi þess að mikið hefur borið á allskonar sjúkdómum og matvælasýkingum, þá er líklegt að gæðakröfur og almennt matvælaeftirlit aukist þegar fram líða stundir. Í verkefninu verða skoðaðar mismunandi gæðakröfur hjá stærstu skyndibitakeðjum heims. Það nær til innri staðla varðandi framleiðsluhætti, t.d. gæðamat á innkeyptu hráefni (kröfur á birgja), úrbeiningar aðferðir, leyfilegt fituinnihald, geymslutíma o.fl . Þegar búið er að afla upplýsinga um þessar gæðakröfur þarf að greina hvernig Marel geti hjálpað þeim birgjum sem sjá skyndibitakeðjunum fyrir hráefni að standast staðla og kröfur sem þar eru framsettar. |

