Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Rannsóknir og tækniþróun

Leiðandi hátæknifyrirtæki

Marel er leiðandi hátæknifyrirtæki á sviði þróunar á hágæðavörum og lausnum fyrir matvælaiðnað um heim allan.

Frá ársbyrjun 2000 hefur Marel starfrækt sérstakan rannsóknahóp undir forystu dr. Kristins Andersen.

Helsta markmið rannsóknahópsins er að auka þekkingu á nýrri tækni sem Marel getur fært sér í nyt til bæði skamms og langs tíma og þannig skotið fleiri stoðum undir tækni- og þekkingargrunn fyrirtækisins.

Þessi rannsóknavinna er viðbót við vöruþróunarstarf, sem er snar þáttur í starfsemi Marel. Rannsóknahópurinn fæst einkum við eftirfarandi:
  • Að sækja ytri þróun og tækninýjungar inn í fyrirtækið.
  • Að þróa nýja tækni og aðferðir til matvælavinnslu innan Marel.
  • Að efla samvinnu á sviði rannsókna og þekkingar við rannsóknastofnanir, háskóla, fyrirtæki og aðra aðila. 


Samstarf um rannsóknir og tækniþróun

Meðal þeirra sem Marel hefur átt samstarf við um rannsóknir og tækniþróun eru:

RANNÍS - Rannsóknamiðstöð Íslands

AVS - rannsóknasjóður í sjávarútvegi

NMÍ - Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Matís

Háskóli Íslands

Háskólinn í Reykjavík

auk fjölda fyrirtækja, háskóla og rannsóknastofnana á Íslandi og erlendis.

Nánari upplýsingar um rannsóknir og tækniþróun veitir Kristinn Andersen (kristinn.andersen@marel.com).



Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0