Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Rannsóknir og þróun

Rannsóknir og þróun hjá MarelLeiðandi hátæknifyrirtæki

Marel er leiðandi hátæknifyrirtæki á sviði þróunar á hágæðavörum og lausnum fyrir matvælaiðnað um heim allan

Frá ársbyrjun 2000 hefur Marel starfrækt sérstakan rannsóknahóp undir forystu dr. Kristins Andersens.

Helsta markmið rannsóknahópsins er að auka þekkingu á nýrri tækni sem Marel getur fært sér í nyt til bæði skamms og langs tíma og þannig skotið fleiri stoðum undir tæknigrunn fyrirtækisins.

Þessi rannsóknavinna er viðbót við vöruþróunarstarf, sem er snar þáttur í starfsemi Marel. Rannsóknahópurinn fæst einkum við eftirfarandi:

  • Að færa ytri þróun og tækninýjungar inn í fyrirtækið.

  • Að þróa nýja tækni innan Marel.

  • Að efla samvinnu á sviði rannsókna og þekkingar við rannsóknastofnanir, háskóla, fyrirtæki og aðra aðila.

  • Að vernda nýja þekkingu með einkaleyfum.

Rannsóknir

Rannsókna- og þróunarstarf í samvinnu við Rannsóknamiðstöð Íslands (RANNÍS)

Í áranna rás hefur Marel starfað náið með RANNÍS að ýmsum tækniþróunarverkefnum, þar á meðal tölvusjón og nýjum vinnslukerfum. Starfsumhverfi til rannsókna og þróunar ásamt menntun vísinda- og tæknimanna skiptir sköpum fyrir hvers konar hátæknifyrirtæki. Því tekur Marel virkan þátt í verkefnum á vegum RANNÍS.

Verkefni undir merkjum Evrópska efnahagssvæðisins

Marel hefur unnið að ýmsum verkefnum sem EES hefur fjármagnað og metið. Eitt slíkt verkefni er ROBOFISH, sem var unnið í tveimur áföngum og hlaut mikið lof fulltrúa EES. Verkefnið fól í sér þróun á þjarkatækni til að afhausa fisk og tryggja hámarksnýtingu. Aðilar frá sex löndum tóku þátt í verkefninu en hlutverk Marel var að nýta tölvusjón til að staðsetja fiskinn fyrir þjarkann.
Þá fjármagnaði EES verkefni um mat á ávinningi af hópvinnu í hugbúnaðarþróun, en tölvunarfræðiskor Háskóla Íslands hlaut svipaðan styrk.

Norrænt samstarfsverkefni

Marel er nú um stundir þátttakandi í norrænu rannsóknarverkefni um þróun og samanburð á aðferðum til að mæla raka í þurrkuðum fiski.

Áður hefur Marel tekið þátt í norrænu verkefni sem nefndist BENEFISH og gekk út á að beita tölvusjón til að meta fisk með tilliti til nýtingar.

Einkaleyfi

Marel sækir árlega um 5-10 einkaleyfi fyrir hönd starfsmanna sem þróað hafa tækninýjungar, sem gerir Marel eitt af virkustu fyrirtækjum á þessu sviði hér á landi.

Einkaleyfisvernd er afar mikilvæg fyrir Marel því sterk staða og virði fyrirtækisins byggir að stórum hluta á tækninýjungum og reynslu starfsmanna.

Rannsóknagestir

Marel treystir böndin við vísindasamfélagið með því að sjá vísindamönnum fyrir starfsaðstöðu í takmarkaðan tíma.

Til dæmis starfaði norskur eðlisfræðingur hjá okkur um mánaðarskeið haustið 2001. Sérsvið hans eru mælitækni og myndgreining.



Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0