Nemendaverkefni
Hugmyndir að nemendaverkefnum í samvinnu við Marel (Icelandic)
Eftirtalin verkefni eru dæmi um viðfangsefni sem tengjast starfsemi Marel hf. og kunna að vera áhugaverð fyrir nemendur á háskólastigi. Umfang þeirra og dýpt má skilgreina með tilliti til nemandans, þ.e. hvort um sé að ræða sumarstarf, áfangaverkefni í námi, lokaverkefni, meistaraverkefni eða doktorsverkefni. Þá eru námssvið og verkefnalýsingar aðeins til leiðbeiningar. Listinn er ekki tæmandi yfir þau viðfangsefni sem koma til greina. Áhugasamir nemendur eru hvattir til að gera tillögur að breytingum eða leggja til önnur verkefni.
Sendið ábendingar og verkefnistillögur til Kristinn Andersen (kiddi@marel.is).
| Verkefni: | Námssvið: |
| Baklýsing í ljósaborðum fyrir fiskvinnslu | Verkfræði, eðlisfræði |
| Bilanagreining kraftnema | Rafmagnsverkfræði, rafmagnstæknifræði, stærðfræði, eðlisfræði |
| CAN‑eining með ASI tengingu | Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
| CompactGrader hugbúnaður | Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
| Drenstútar | Verkfræði, tæknifræði |
| Endurhönnun rafrænna orðasafna Marel | Tölvunarfræði, verkfræði |
| Formflokkun – reiknirit til flokkunar | Verkfræði, tölvunarfræði, eðlisfræði, stærðfræði |
| Formflokkun - viðmót | Verkfræði, tölvunarfræði |
| Formflokkun - þrívíddartölvusjón | Verkfræði, tölvunarfræði, eðlisfræði, stærðfræði |
| FP bestun | Tölvunarfræði, stærðfræði |
| FP hermir | Tölvunarfræði, verkfræði |
| Frágangur lagna í vinnslulínum fyrir matvæli | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
| Gagnanámur í matvælavinnslu | Tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði/tölfræði |
| Geislunarmælir | Eðlisfræði, verkfræði, tölvunarfræði |
| Gerð notendaleiðbeininga fyrir vélbúnað/hugbúnað | Enska, upplýsingamiðlun |
| Greining á hreyfingum loftknúinna eininga | Verkfræði, eðlisfræði, tölvunarfræði |
| Greining og röðun einsleitra hluta | Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði, vélaverkfræði, stærðfræði, eðlisfræði |
| Gæði skráningargagna | Tölvunarfræði, verkfræði, tæknifræði, stærðfræði |
| Hitamælar | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
| Hugbúnaður til að herma matvælavinnslu | Verkfræði, tæknifræði |
| Hönnun loftkerfa | Vélaverkfræði, véltæknifræði |
| iButton Reader interface to USB | Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
| Léttur vigtarpallur | Verkfræði, tæknifræði |
| Magurt framleiðsluferli | Verkfræði, tæknifræði |
| Markaðsfærsla á nýjum mörkuðum | Viðskiptafræði |
| Mæling á þyngdardreifingu | Verkfræði, tölvunarfræði |
| Notendaviðmót með raddstýringu | Verkfræði, tölvunarfræði |
| Optískur hraðamælir fyrir færibönd | Tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði/tölfræði |
| Raka- og þrýstiskynjari | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði, tölvunarfræði |
| Rakaþétting í rafskápum | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði, efnafræði |
| Róbótar í framleiðsluferli | Verkfræði |
| Róbótar í matvælavinnslu | Verkfræði, eðlisfræði |
| Saltfiskmötun með róbóta | Verkfræði, eðlisfræði |
| Samanburður skömmtunaraðferða | Verkfræði |
| Sjálfvirk innmötun stykkja fyrir prófanir | Verkfræði |
| Skipulagning framleiðslu fyrir samvalspakkningar | Tölvunarfræði, verkfræði, tæknifræði, stærðfræði |
| Slit mælt með titringi og hljóðbylgjum | Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði, vélaverkfræði |
| Snúningshraðamælir | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
| Stilling flokkara með lófatölvu | Verkfræði, tölvunarfræði |
| Stærð iðngreina | Viðskiptafræði |
| Söluáætlanir og vöktun þeirra | Viðskiptafræði, tölvunarfræði |
| Teikningablokkir búnar til með sjálfvirkum hætti | Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
| Tækjasamstæður búnar til með teikningablokkum | Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
| Tölvusjón notuð til að skynja hluti á færibandi | Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði, vélaverkfræði |
| Undirstöður fyrir tæki | Verkfræði, tæknifræði |
| Útfærslur - teikningar | Verkfræði, tæknifræði |
| Vatnsskynjari | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
| Vefþjónn fyrir CAN‑stýringar | Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði |
| Yfirborðsmeðhöndlun | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
| Yfirborðsmeðhöndlun og tæring stáls | Vélaverkfræði, efnafræði, eðlisfræði |
| Þráðlaus skráningarbúnaður fyrir starfsmenn | Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
| Þvingað samval - hermun | Tölvunarfræði, verkfræði |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
| Verkfræði, eðlisfræði | Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Í fiskvinnslulínum eru notuð ljósaborð sem hjálpa starfsfólki við að greina aðskotahluti, s.s. orma og roðflyksur, í fiskflökum. Þessi ljósaborð eru venjulega baklýst með flúrperum sem krefjast tíðrar endurnýjunar og viðhalds. Í verkefninu eru kannaðir aðrir kostir á baklýsingu, t.d. með ljósadíóðum eða annarri lýsingu sem krefðist minna viðhalds. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
| Rafmagnsverkfræði, rafmagnstæknifræði, stærðfræði, eðlisfræði | Jón Þór Ólafsson jon@marel.is |
Í vogum Marel eru notaðir kraftnemar, sem byggja á „Wheatstone-brú“ úr fjórum viðnámum, auk tveggja viðnáma til viðbótar. Frá tengipunktum í brúnni liggja leiðslur út úr nemanum. Kraftnemar eiga til að bila og þá af mismunandi orsökum, sem hafa í för með sér mismunandi skemmdir á viðnámunum. Verkefnið felst í að hanna aðferð til að mæla hvers eðlis skemmdirnar eru í biluðum kraftnemum og meta þannig væntanlegar orsakir þeirra. Hér reynir á færni í að greina rafrásina, sem er tiltölulega einföld, en sá galli er á að viðnámin í rásinni eru ekki nákvæmlega þekkt. Í verkefninu þarf því að kortleggja ástand rásar með ytri mælingum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
| Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði | Jón Reynir Vilhjálmsson jonv@marel.is |
Hönnuð verði tölvueining sem tengist inn á CAN‑net, annars vegar, og ASI, hins vegar. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
Auðun Páll Sigurðsson aps@marel.is |
Windows hugbúnaður fyrir CompactGrader sem er einfaldasti flokkara frá Marel. Viðkomandi ætti að hugsa aðeins út fyrir MPS sem er núverandi application hugbúnaður Marel. Hugmyndin væri að nýta tækni eins og þráðlaust net og lófatölvur ásamt því að hafa innbyggt skýrslugerðartól sem hver sem er getur notað. Þarf að vera auðvelt í uppsetningu og hægt að nota hvar sem er í heiminum … líka Asíu og Rússlandi (letur/tákn). |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Þorkell H. Halldórsson thorkell@marel.is |
Þegar vatn safnast upp inni í lokuðum rafskápum í matvælavinnslu þarf að vera unnt að hleypa því út. Í verkefninu verði hannaðir stútar eða opnanir sem hleypa vatni auðveldlega út, en hindra jafnframt að vatn berist inn. Til greina kemur að nota rafknúna dælu sem dælir út vatni þegar það hefur safnast upp. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði |
Lára I Hallgrímsdóttir lara@marel.is |
Marel ræður yfir orðasafni í Lotus Notes, en ekki er auðvelt að flétta viðbætur úr erlendum þýðingum handbóka inn í þennan grunn. Verkefnið leitar leiða til að auðvelda þetta ferli, og gera orðasafnið aðgengilegt öllum starfsmönnum fyrirækisins, hugsanlega fyrir utan Notes-umhverfið. Einnig mætti skoða möguleika á að útbúa tengingu úr teikniforritum (SolidWorks) í orðasafnið, þannig að t.d. vélahönnuðir gætu bætt inn orðum jafnóðum og þau verða til við hönnun. Bein tenging við birgðaskrá Axapta væri æskileg. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tölvunarfræði, eðlisfræði, stærðfræði |
Hrafnkell Eiríksson he@marel.is |
Í matvælaiðnaði þarf oft að flokka sundur stykki eftir formi þeirra og lögun. Gerðar eru samanburðartilraunir með mismunandi reiknirit til flokkunar, s.s. tauganet, tölfræðilega flokkara og loðin ályktunarkerfi . |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tölvunarfræði |
Hrafnkell Eiríksson he@marel.is |
Tæki í verksmiðjum verða að vera með einföldu viðmóti þótt þeim sé ætlað að stýra flóknum tækjum. Í matvælaiðnaði er ekki rúm fyrir marga takka og notendur tækjanna oft með hendurnar uppteknar. Nauðsynlegt er að hafa auðskilin viðmót sem fljótlegt er að læra á. Viðmót til stillinga á reikniriti formflokkara verður notað sem dæmi („case study“) í þessu verkefni. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tölvunarfræði, eðlisfræði, stærðfræði |
Hrafnkell Eiríksson he@marel.is |
Í matvælaiðnaði þarf oft að flokka sundur stykki eftir formi þeirra og lögun. Verkefnið felst í að kanna hvað vinnst við að nota þrívíddartölvusjón til formskynjunar í stað tvívíðra skuggamynda. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, stærðfræði |
Bjarni Guðmundsson bjarni@pols.is |
Þróuð hefur verið aðferð (algrím) sem nefnist flæðisamval Póls (FP), þar sem einstök stykki eru valin saman í skammta af tiltekinni heildarþyngd. Í verkefninu fer fram greining og betrumbætur á reikniaðferðum fyrir flæðisamval. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði |
Bjarni Guðmundsson bjarni@pols.is |
Þróuð hefur verið aðferð (algrím) sem nefnist flæðisamval Póls (FP), þar sem einstök stykki eru valin saman í skammta af tiltekinni heildarþyngd. Í verkefninu verður fundin aðferð til að framkalla eðlilega dreifingu hlutvigtana út frá gefnum upplýsingum um hráefni. Markmiðið er að skila verkfæri sem hægt er að nota til að meta hversu vel FP hentar í tiltekin verkefni. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
Árni Sigurðsson arni@marel.is |
Kannaðir eru mismunandi kostir á frágangi lagna í vinnslulínum. Um er að ræða loftlagnir (með þrýstilofti), sterkstraumslagnir, veikstraumslagnir og gagnakapla. Auðvelt þarf að vera að setja lagnirnar saman í framleiðslu og komast að þeim vegna viðhalds. Þrif þurfa að vera auðveld og ekki má vera hætta á að lagnirnar safni óhreinindum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði/tölfræði |
Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Frá tækjum Marel safnast upp gríðarlegt magn gagna úr matvælavinnslunni. Í verkefninu verður skoðað hvernig aðferðir gagnanáma („data mining“) má nota til þess að draga fram upplýsingar sem koma að sem mestu gagni fyrir notendur kerfa Marel. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Eðlisfræði, verkfræði, tölvunarfræði |
Hrafnkell Eiríksson he@marel.is |
Til er búnaður sem numið getur geislun og sendir frá sér rafmerki í samræmi við hana. Hanna þarf rafeindabúnað og hugbúnað til að vinna úr merkjunum og skila þeim á skjá eða í skrár á hentugu formi. Einnig þarf að hanna notendaviðmót og þróa heildstætt tæki. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Enska, upplýsingamiðlun |
Lára I Hallgrímsdóttir lara@marel.is |
Fyrir utan gerð notendaleiðbeininga fyrir tiltekna vöru/vörur, gerir verkefnið ráð fyrir úttekt á núverandi notendaleiðbeiningum Marel hvað varðar nytsemi og framsetningu. Leiðbeiningarnar geta verið í hefðbundnu formi handbóka, en mega einnig vera í óhefðbundnara formi, t.d. sem myndband, teiknimyndir o.fl. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, eðlisfræði, tölvunarfræði |
Brynjólfur Þórsson binni@marel.is |
Í tækjum Marel eru ýmsar loftknúnar einingar sem ýta hráefni til, opna eða loka fyrir hráefnisflæði, o.s.frv. Í verkefninu væri hröðunarskynjurum komið fyrir á slíkum einingum og hreyfingarnar skráðar og greindar. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði, vélaverkfræði, stærðfræði, eðlisfræði |
Brynjólfur Þórsson binni@marel.is Hrafnkell Eiríksson he@marel.is |
Þegar matvælum er raðað í umbúðir, t.d. kjötsneiðum í bakka eða kassa, er æskilegt að stykkin séu tiltölulega „lík“, þ.e. að ekki séu mjög misstór eða mislit stykki hlið við hlið. Lausn þessa verkefnis er margþætt. Til þess að greina mun stykkjanna má t.d. beita tölvusjón, en auk mælinganna þarf í úrvinnslunni að leggja mælistiku á hvað eru „svipaðir“ eða „nægilega líkir“ hlutir. Annar þáttur í verkefninu er að ákveða hvernig raða skuli hlutunum, eftir því hve „líkir“ þeir eru. Ennfremur er áhugavert að greina hvort hráefnið nýtist í einhverjum skilningi verr eða vinnsla tefjist við að taka tillit til þessara atriða. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði, tæknifræði, stærðfræði |
Tryggvi Sch. Thorsteinsson tst@marel.is |
Skoðaðar aðferðir til að meta gæði skráningagagna. Gögn væru flokkuð eftir fyrirfram ákveðinni forskrift og niðurstöður síðan notaðar til að meta gæði gagnanna. Niðurstöðurnar gætu síðan verið mælikvarði á hvort t.d. verið væri að nota Marel-tækin á réttan hátt, hvort hugbúnaðarhnökrar væru í skráningarbúnaði, o.s.frv. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
Gústaf Hjálmarsson gustaf.helgi.hjalmarsson@marel.is |
Kanna möguleikann að nota hitamæla sem geta tengst inn á netkerfi Marel búnaðar og skráð hitastig í vinnslurýmum. Einnig skoða mögulegan hitamæli "probe" til að mæla og skrá sjálfvirkt yfir þráðlaust "Marel" net hitastig í hráefni og afurðum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Magnús Rögnvaldsson mhr@marel.is |
Kanna hvernig hægt er að herma matvælavinnslu með Marel búnaði til að auðvelda vinnu ráðgjafa hjá Marel. Væntanlega er hægt að nota „off the shelf“ hermunarhugbúnað, en ekki er ljóst hvaða hugbúnað og hvernig. Þetta gæti nýst einna best þar sem kanna þarf hvert álagið er á vinnustöðvar í flæðilínum, álag á pökkunarstæði og pökkunarvélar, sem og aðrar vélar sem afurðir þurfa að fara í gegnum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Vélaverkfræði, véltæknifræði |
Haraldur Guðlaugsson hallig@marel.is |
Í flokkurum og flæðilínum þarf að velja saman stærðir loftloka og sverleika af slöngum til að hver lofttjakkur, í ákveðinni lengd frá loftpressu, sé sem hraðvirkastur. Dæmigert er úr að velja 3‑4 gerðir misstórra loftloka og 2‑3 missverar loftslöngur. Þá eru tjakkarnir missverir og langir. Í stað þess að velja hlutina saman eftir reynslu eða tilfinningu væri áhugavert að gera fræðilega athugun á þessum hlutum. Hjá Marel er til mælitæki fyrir slík loftkerfi. Niðurstaða verkefnisins gæti t.d. verið hjálpartæki til að velja loka og lagnir miðað við gefna fjarlægð og stærð tjakks. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
Jón Reynir Vilhjálmsson jonv@marel.is |
Á M6000, sem er PC skráningarstöð framleidd hjá Marel, er svokallaður iButton lesari til að lesa inn einkvæm serial númer fyrir ýmsar skráningar. Í M6000 er USB controller sem þarf að skrifa (aðlaga) embbeded hugbúnað fyrir á Fujitsu MB90F598 microcontroller, einnig þarf að skrifa USB driver á PC skráningastöðinni til að taka við skráningargögnum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Hannaður verður mjög léttur vigtarpallur fyrir færibandavogir. Pallurinn verði tæplega 400 mm langur og um 300 mm breiður. Slitfletir við reim þurfa að að byggjast á matvælaviðurkenndum plastefnum og æskilegt er að pallurinn sé sem opnastur til að minnka loftáhrif. Markmið er að hanna stífan en jafnframt eins léttan vigtarpall og kostur er. Venja er að nota stál og plast, en skoða þarf létt efni eins og koltrefjar. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Magnús Þór Ásmundsson magnus@marel.is |
Skoða framleiðsluferli vöru eða vöruhópa, frá sölu til afhendingar m.t.t. hugmyndafræði um „Lean thinking“. Markmiðið er að einblína á virðisaukandi aðgerðir í virðiskeðjunni, bæta flæði, losna við óþarfa og stytta þar með framleiðslutíma vörunnar. Takmarka má dæmi við ákveðna framleiðsluvöru Marel og benda á leið til að stytta afhendingartíma. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Viðskiptafræði |
Ragnar Bjartur Guðmundsson ragnar@marel.com |
Markaðsáætlun fyrir markaðsfærslu Marel í viðkomandi löndum með áherslu á markaðshlutun (market segments). Höfum sérstakan áhuga á Mið-Ameríku, Italíu, Austur-Evrópulöndum, Japan, Kína, Indlandi, Suðaustur Asíu og Mexíkó, en önnur lönd koma jafnframt til greina. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tölvunarfræði |
Viðar Erlingsson vidar@marel.is |
Skurðarvélar Marel nýta sér þyngdardreifingu til að ákvarða skurðarmynstur. Nákvæmni skurðarvélanna er því mjög háð gæðum matsins á þyngdardreifingunni. Núverandi tækni byggir á tölvusjón en tölvusjón getur aðeins mælt rúmmál en ekki raunverulega þyngdardreifingu. Því er áhugi á því að athuga hvort ekki sé hægt að mæla þyngdardreifinguna með vigtun. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tölvunarfræði |
Hrafnkell Eiríksson he@marel.is |
Starfsfólk í verksmiðjum hefur oft ekki tök á að nota hendurnar til að slá inn upplýsingar á tölvur eða gefa tækjum skipanir. Því er áhugavert að skoða hvernig mætti útbúa notendaviðmót með raddstýringu. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði/tölfræði |
Jón Þór Ólafsson jon@marel.is |
Hannaður mælir sem staðsetja mætti fyrir ofan færibönd (dæmigert nokkrum sentimetrum ofar) og gæfi upplýsingar um hraða bandsins. Mælirinn þyrfti að uppfylla kröfur um góðan vatnsþéttleika, hann gengi fyrir 24 V spennu og gæti tengst öðrum kerfishlutum gegnum CAN net. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði, tölvunarfræði |
Jón Þór Ólafsson jon@marel.is |
Not eru fyrir raka- og þrýstiskynjara (0‑8 bar) í búnaði Marel, s.s. í flokkurum og flæðilínum. Skynjarinn gengi fyrir 24 V spennu og gæti tengst öðrum kerfishlutum gegnum CAN net. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði, efnafræði |
Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Þétting og myndun raka innan á veggjum stálskápa í köldu umhverfi, s.s. í matvælavinnslu, er rannsökuð. Gerðar eru tilraunir og mælingar til að meta þéttinguna og þróað líkan sem lýsir henni með tilliti til aðstæðna. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði |
Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Staða róbótatækni fyrir framleiðsluferli Marel verður metin. Nú þegar hefur Marel tekið róbóta í notkun fyrir rafsuðu. Hér verða frekari útfærslur við rafsuðu skoðaðar, auk þess sem fleiri notkunarsvið fyrir róbóta í framleiðsluferlinu verða fundin og nánari grein gerð fyrir hönnunarforsendum, ávinningi og öðrum þáttum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, eðlisfræði |
Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Staða róbótatækni fyrir matvælavinnslu verður metin. Fundin verða tiltekin notkunarsvið fyrir róbóta í vinnslulínum Marel og nánari grein gerð fyrir hönnunarforsendum, ávinningi og öðrum þáttum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, eðlisfræði |
Kristinn Andersen kiddi@marel.is |
Ennþá er notkun róbóta í fiskverkun nánast hverfandi lítil. Áhugi er að að nota róbóta til að raða saltfiski í kassa. Kanna þarf hvers konar róbótar henta í slíka vinnu, m.t.t. stærðar, stýrieiginleika, þrifahæfni, seltuþols, vatnþols, o.fl. Þá er ekki augljóst hvernig róbótinn á að grípa saltfiskinn, sem getur verið óreglulegur í lögun, tiltölulega stór, þurr, saltþakinn og hrjúfur. Kanna þarf því hvers konar gripkló eða sogskálar henta í þessa notkun. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði |
Bjarni Guðmundsson bjarni@pols.is |
Borin verður saman skömmtun í fastþyngdarpakkningar með þekktum aðferðum. Taka skal inn í dæmið verð búnaðar og hráefnis ásamt kostnað og fyrirhöfn vegna frákasts sem þarf að endurvinna. Hvað kostar yfirvigtin og hvað kostar að ná henni niður? |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði |
Brynjólfur Þórsson binni@marel.is |
Við prófanir tækja og kerfa í matvælaiðnaði er gagnlegt að geta sett fjölda stykkja viðstöðulaust inn í tækin og rakið feril þeirra gegnum kerfin. Í verkefninu verði hannaður búnaður sem matar umtalsvert magn prófunarstykkja inn í tæki, t.d. inn á færibönd. Afar gagnlegt væri að búnaðurinn gæti náð stykkjunum saman aftur og endursent þau gegnum kerfin, þannig að flæðið væri nánast viðstöðulaust. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði, tæknifræði, stærðfræði |
Tryggvi Sch. Thorsteinsson tst@marel.is |
Samval er aðferð, sem nú þegar hefur verið þróuð og er notuð í flokkurum Marel til þess að búa til skammta hráefnis af tiltekinni þyngd. Í þessu verkefni verði þróaðar aðferðir til að velja hagstæðasta framleiðsluskipulag í samvalsvinnslu, þannig að ná megi hagræðingu sem leiðir til minni heildaryfirvigtar og um leið betri nýtingu hráefnis en nú er. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði, vélaverkfræði |
Haukur Hafsteinsson hah@marel.is |
Hlutir sem hreyfast, s.s. færibönd, mótórar og loftlokar, mynda titring og hljóðbylgjur. Þessi hljóðmerki breytast þegar hlutirnir eldast og slitna og jafnvel mætti greina í þeim að bilun væri í aðsigi. Í verkefninu verða þessi merki greind, t.d. með hljóðnema eða hröðunarnema, fylgni skoðuð milli slits og merkjanna, og hugsanlega þróuð aðferð til að mæla slit eða gefa til kynna væntanlegar bilanir. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
Jón Þór Ólafsson jon@marel.is |
Snúningshraðamælar eru víða gagnlegir í tækjum Marel. Mælirinn þarf að vera öruggur, vatnsheldur, þarf að þola hnjask („róbúst“) og sé þægilegur í uppsetningu. Hann gæti byggst á legu með púlsúttaki eða öðrum traustum búnaði. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tölvunarfræði |
Brynjólfur Þórsson binni@marel.is |
Flokkarar Marel eru oft stór tæki, dæmigert nokkrir metrar eða jafnvel tugir metra á lengt. Nauðsynlegt er að stilla á miðlægri stýritölvu ýmsar loftknúnar hreyfingar víða á hverjum flokkara. Hentugt væri að geta fjarstýrt þessum stillingum með lófatölvu frá þeim stað verið er að stilla hverju sinni. Verkefnið felst í þróun hugbúnaðar fyrir þetta. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Viðskiptafræði |
Magnús Rögnvaldsson mhr@marel.is |
Rannsaka stærð þeirra iðngreina (sjávarfang, alifuglar, kjöt) sem innihalda mögulega viðskiptavini Marel. Skoða td. inn og útflutning afurða, helstu framleiðslusvæði, helstu framleiðendur, helstu vinnsluaðilar, helstu útflytjendur. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Viðskiptafræði, tölvunarfræði |
Sigurjón Elíasson sigurjonel@marel.is |
Framkvæmd söluáætlana sem þarf að vera greinanleg á markaði/lönd, iðnaði og tæki. Uppfæranlegt og endurskoðanleg mánaðarlega. Mælikvarðar á verðmæti og fjölda tækja birtanlegir á markað, iðnað og tækjahóp. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
Þorkell H. Halldórsson thorkell@marel.is |
Hanna þarf aðferðir til að búa til einfaldar myndir byggingarmódúla, eða teikningablokkir, með sjálfvirkum hætti. Þessar blokkir væru frambærilegar myndir af upprunalegu teikningunum, en einfaldari og því léttari í tölvuvinnslu. Með þessum myndum fylgdu textaupplýsingar sem unnt væri að draga út og vinna áfram með, t.d. framleiðslunúmer, framleiðsluuppskriftir, o.s.frv. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, tölvunarfræði |
Þorkell H. Halldórsson thorkell@marel.is |
Hannað verður vinnuumhverfi til að setja saman tækjasamstæður með teikningablokkum (sjá verkefnið „Teikningablokkir...“) með sem auðveldustum hætti. M.a. verði unnt að lesa textaupplýsingar um sérhvern hlut í teikningablokkinni og í vinnuumhverfinu verði auðvelt að vinna með slíkar upplýsingar, taka þær saman, o.s.frv. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði, vélaverkfræði |
Haukur Hafsteinsson hah@marel.is |
Marel notar yfirleitt ljósskynjara til að gefa merki um að hlutir séu á tilteknum stað á færibandi. Hluturinn rýfur ljósgeisla og þar með má staðsetja hann eftir færslu beltisins. Í verkefninu verður tölvumyndavél notuð í stað ljósskynjara. Myndavélina má t.d. staðsetja yfir beltinu og hún vaktar þar í sífellu þá hluti sem færast eftir því. Frá myndavélinni, eða búnaði sem tengist henni, eru send merki sem tilgreina staðsetningu hluta og hugsanlega önnur atriði (lögun, stærð, stefnu,...). |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Þorkell H. Halldórsson thorkell@marel.is |
Hannaðar undirstöður sem byggja á „massífum“ eða heilsteyptum efnum, s.s. plasti og stáli, en ekki á opnum byggingarefnum, s.s. prófílum og rörum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði |
Bjarni Guðmundsson bjarni@pols.is |
Alltaf liggja fyrir hugmyndir að vélbúnaði eða breytingum á vélbúnaði sem bíða þess að komast af tússtöflustiginu. Þörf er á bættri framsetningu og raunhæfum útfærslum til að t.d.: |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
Jón Þór Ólafsson jon@marel.is |
Hannaður skynjari sem greinir að vatn hafi borist inn í lokað rými, s.s. rafskáp, og sendir rafmerki (t.d. 24 V) ef svo er. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Rafmagnsverkfræði, tölvunarfræði |
Haukur Hafsteinsson hah@marel.is |
CAN (Controller Area Network) er tölvunet sem sérstaklega er hannað til að tryggja hröð og örugg samskipti til stýringa. Marel notar CAN til að senda stýriboð milli tækja og innan tækjanna. Í verkefninu verði hannaður þjónn sem sinnir samskiptum við stýrieiningar á netinu. Þjónnin keyrir á Linux og notaður verður vélbúnaður sem Marel þróar. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
Gústaf Hjálmarsson gustaf.helgi.hjalmarsson@marel.is |
Þróa yfirborðs- eða aðra meðhöndlun á plast og stál til að minnka viðloðun "klístraðra" matvæla ásamt því að lágmarka bakteríuvöxt. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Vélaverkfræði, efnafræði, eðlisfræði |
Jón Þór Ólafsson jon@marel.is |
Marel notar ryðfrítt stál í tækjum sínum, þar sem ryð má ekki finnast í matvælavinnslu. Í verkefninu verða skoðaðar nánar ýmsar aðferðir sem notaðar eru við frágang á yfirborði stálsins, s.s. glerblástur og sýruþvottur. Kannað verður hvaða áhrif þessar aðferðir hafa á mótstöðu gegn ryðmyndun. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Verkfræði, tæknifræði, eðlisfræði |
Jens Bjarnason jens.bjarnason@marel.com |
Skoða möguleika á þráðlausum "senditækjum" sem tengist tímaskráningarkerfum okkar þannig að starfsmenn geti farið milli svæða án þess að skrá sig handvirkt en samt myndu vinnutímar skrást á rétt svæði. Einnig skoða hvort þetta gæti nýst við að skrá hvaða starfsmenn eru að vinna við marel tæki og hvaða stafsmenn eru að breyta stillingum á tækjunum. |
| Námssvið: | Tengiliður: | Verkefnislýsing: |
|---|---|---|
|
Tölvunarfræði, verkfræði |
Bjarni Guðmundsson bjarni@pols.is |
Einkennandi fyrir samvalsvél er að til staðar er tiltekinn fjöldi vigtana með þekktri þyngd. Úr þessu safni vigtana er svo valinn saman skammtur af vigtunum sem samanlagðar uppfylla ákveðin skilyrði. Innmötunar og frátökuaðferðir frá samvalsvélum getur sett því strangar skorður hvaða tilteknu vigtanir eru tiltækar í hvern skammt. Köllum það þvingað samval ef þessar skorður eru strangar. Dæmi um slíka vél er t.d. flæðisamvalið (Póls-FP). Dæmi um “óþvingað” samval eru t.d. Póls-PW7 og hefðbundnar “multihead” vélar. Uppi eru nokkrar hugmyndir að útfærslum á vélum sem nota þvingað samval. Einn þáttur í mati á slíkum hugmyndum er að herma virkni þeirra í samvalsvinnslu. |

