Sagan
Atburðir í sögu Marel
1977-83 – Sagan hefst. Tveir verkfræðingar við Háskóla Íslands byrja að kanna möguleikann á að þróa og framleiða vogir með það að markmiði að auka skilvirkni og framleiðni í fiskvinnslu. Raunvísindastofnun Háskólans og fyrirtækið Framleiðni sf. hefja sameiginlegt verkefni. Fyrsta vogin hönnuð og smíðuð. Marel hf. er stofnað í Reykjavík 17. mars 1983.
Fært út kvíarnar
1984-86 – Marel selur fyrstu skipavogina árið 1985 og útflutningur hefst til Noregs. Jafnframt því sem fyrirtækið getur sér góðan orðstír víða um lönd fyrir gæði og nýsköpun stofnar það fyrsta dótturfélagið, Marel Equipment, með starfsstöð í Halifax í Nova Scotia í Kanada. Heima fyrir flytur Marel hf. á núverandi starfsstað að Höfðabakka 9 í Garðabæ.
Frekari útrás og kjúklingavinnsla
1987-88 – Vogir frá Marel hafa nú verið settar upp í skipum frá Kanada, Bandaríkjunum, Vestur-Þýskalandi, Færeyjum, Grænlandi, Danmörku, Frakklandi og Spáni. Fyrirtækið byrjar að hasla sér völl á nýju sviði þegar það selur fyrstu tvo kjúklingaflokkarana til Nýja Sjálands. Útflutningur svarar nú til 77% af heildartekjum fyrirtækisins.
Rauð dögun
1989 – Sovétríkin bætast í hóp viðskiptavina Marel. Í fyrstu eru pantaðar 100 skipavogir en þessi tala á eftir að vaxa svo um munar. Fyrirtækið selur fyrstu tölvustýrðu M2000 vogina og hleypir af stokkunum stærsta flokkaranum fram að þessu. Flokkarinn er notaður í saltfiskvinnslu og er nógu stór til að ráða við stærri fisktegundir á borð við laxfiska.
Stór skref fram á við
1990 – Við upphaf nýs áratugar er Marel leiðandi á heimsvísu í skipavogum. En nú tekur fyrirtækið stórt skref fram á við þegar það markaðssetur hugbúnaðinn MP/2, sem er nýtt flokkunarkerfi fyrir saltfisk. Laxapökkunarkerfi er þróað í samstarfi við norska umboðsaðilann Maritech Systems. Marel hlýtur Útflutningaverðlaun forseta Íslands.
Það sem koma skal
1991 - Margra ára rannsókna- og þróunarstarf getur af sér fyrsta vinnslukerfi Marel með tölvusjón til að flokka fisk og skelfisk eftir þyngd og lengd. Þegar viðskipti með hlutabréf í Marel hefjast hér á landi hefst rekstur annars dótturfélags, með starfsstöð í Seattle til að koma til móts við aukna eftirspurn á Norður-Ameríkumarkaði.
Inn á Afríkumarkað
1992-93 – Marel er nú skráð á íslenskum hlutabréfamarkaði og gengur skrefinu lengra með tölvusjóntækni sína þegar nýr háhraðaformflokkari lítur dagsins ljós og er bráðlega hleypt af stokkunum á bandarískum kjúklingamarkaði. Sem dæmi um aðrar nýjar vörur má nefna flæðilínu til fiskvinnslu og flokkunarbúnað fyrir Alaska ufsahrogn. Marel er þegar með virka starfsemi í fjórum heimsálfum en sækir nú inn á Afríkumarkað með sölu til Namibíu.
Frekari nýjungar
1994 – Marel hleypir af stokkunum fyrstu tölvustýrðu skömmtunarvélinni og salan á skipavogum nær 2.000 stykkjum. Skipavogirnar hafa verið settar upp í 700 skipum frá 25 löndum, sem svarar til 60% hlutdeildar af heimsmarkaðnum. Í leit að frekari sóknarfærum sækir fyrirtækið inn á bandaríska kjötmarkaðinn með uppsetningu á flokkunar- og eftirlitskerfum í svínakjötsvinnslu í Detroit.
Litríkar lausnir
1995-96 – Á sama tíma og söluhæsta vogin til þessa, M1000, er kynnt til sögunnar er fyrsta litaflokkara Marel ýtt úr vör. Útrásin heldur áfram með stofnun sölu- og þjónustufyrirtækjanna Marel USA í Kansas City, Marel Europe (Støvring, Danmörku), og Marel Trading (Reykjavík), en hið síðastnefnda sér um ýmis verkefni á vegum Marel, sér í lagi í Rússlandi.
Gæðin staðfest
1997 – Marel kaupir danska fyrirtækið Carnitech A/S, Marel France er stofnað í Nantes og ný laxaflæðilína er seld til Noregs. Gæði framleiðslu Marel eru staðfest þegar fyrirtækið fær ISO 9001 gæðavottun Alþjóðlegu staðlasamtakanna.
„Dagur í austri öllum“
1998 – Marel UK er stofnað, fyrsta MPS hugbúnaðarkerfið er sett upp og ný kynslóð af M3000 tölvum með grafískum litaskjá lítur dagsins ljós. Á sama tíma og sala á Marel IPM skurðarvélinni nær 100 stykkjum er fyrsta kjötflæðilínan seld til Þýskalands. Hinum megin á hnettinum hefst sala á Japansmarkaði.
Horft til framtíðar
1999 – Marel kynnir til sögunnar byltingarkennda lárétta skömmtunarvél. Á besta rekstrarári Marel samstæðunnar til þessa er fjöldi starfsmanna fyrirtækisins orðinn nærri því 500. Þar af starfar rúmlega helmingur erlendis. Rétt áður en árið 2000 gengur í garð selur Marel þúsundasta flokkarann.
Þolgóð skurðarvél og framfarir í vinnslu
2000 – Marel setur á markað IPM XL, þolgóða tölvustýrða skurðarvél sem sker allt að 14 tommu breið, erfið nautakjötsstykki og framleiðir 4.000-4.500 pund af unninni vöru á hverri klukkustund. Í kjúklingaiðnaði bætir bandaríska fyrirtækið Foster Farms framleiðslu sína, nýtingu og afköst starfsmanna umtalsvert með því að innleiða 24 stæða úrbeiningarflæðilínu frá Marel í vinnslustöð sinni í Kelso í Washington-ríki. Þetta er stórt skref frá hefðbundnari kerfum.
Enn fært út kvíarnar
2001 – Marel færir út kvíarnar í Þýskalandi og Mið-Evrópu með stofnun Marel Deutschland og kaupum á TVM Maschinenbau. Þessu er fljótt fylgt eftir þegar hin byltingarkennda úrbeiningarflæðilína Marel er sett upp í stórri vinnslustöð í Hamborg. Á sama tíma er hafist handa við byggingu 14.200 m2 höfuðstöðva Marel í Garðabæ.
Með margar nýjungar í farteskinu
2002 – Mikil framför á sér stað í laxaslægingu með tilkomu nýs laxaflokkunar- og mötunarkerfis. Við þessa lausn bætist fljótt IPM lll LaserEye, sem er tölvusjónstýrð skömmtunarvél fyrir laxfiska, bolfisk og næstum hvaða aðrar gerðir fiska sem er. Tölvusjóntækni Marel nær nýjum upphæðum með SensorX, sem nýtir röntgentækni til beinaleitar í laxfiski. Um sumarið flytur fyrirtækið í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar, sem eru sérhannaðar fyrir starfsemina.

