Marel leggur metnað sinn í að styðja við kennslu í nýsköpun og verk- og raungreinum á öllum skólastigum, frá leikskóla uppí háskóla. Hér að neðan er sýnishorn af þeim fjölbreyttu verkefnum á þessu sviði sem Marel veitir brautargengi á hverju ári.
 |
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda er keppni fyrir alla aldurshópa grunnskólans. Tilgangur hennar er að virkja sköpunarkraft barna og unglinga í landinu og efla áhuga þeirra á verk- og raungreinum. Í gegnum árin hafa þúsundir snjallra hugmynda og uppfinninga litið dagsins ljós í keppninni. Vinnusmiðja fer fram á haustin þar sem hugmyndir sem komast í úrslit eru útfærðar frekar með aðstoð leiðbeinenda. Marel hefur verið aðalbakhjarl keppninnar frá upphafi. http://nkg.is
|
 |
Alþjóðleg athafnavika
Alþjóðlega athafnavikan er haldin samtímis í yfir 100 löndum í nóvember á hverju ári. Tilgangur vikunnar er að sýna fram á gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið í heild sinni og hvetja fólk til að tileinka sér nýsköpun, athafnasemi og frumkvöðlahugsun. Marel hefur verið bakhjarl vikunnar frá því að hún var fyrst haldin á Íslandi árið 2009. Það er Innovit sem er umsjónaraðili vikunnar á Íslandi. http://www.athafnavika.is/
|
 |
Snilldarlausnir Marel
Snilldarlausnir Marel er hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna sem haldin er í tengslum við Alþjóðlega athafnaviku. Keppnin gengur út á að virkja ímyndunaraflið og gera sem mest virði úr einföldum hlut. Afurðin sem þátttakendur útbúa er svo í formi myndbands sem sýnir fram á virkni eða virði hlutarins. Árið 2009 var herðatré valið sem viðfangsefni keppninnar, árið eftir var það pappakassi. Hvað skyldi verða fyrir valinu næst? http://www.snilldarlausnir.is/
|
 |
Gulleggið
Innovit stendur árlega fyrir Gullegginu, frumkvöðlakeppni íslenskra háskólanemenda og nýútskrifaðra. Meginmarkmið keppninnar er að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja. Þannig er keppnin orðin gæðastimpill á viðskiptahugmyndir og fyrir frumkvöðla sem munu á næstu árum laða að enn fleiri fjárfesta, skapa ný störf og verðmæti fyrir íslenskt þjóðfélag. Marel er einn af bakhjörlum keppninnar. http://www.innovit.is/
|
 |
Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema HÍ
Nemendur í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands sjá um undirbúning og framkvæmd hinnar æsispennandi hönnunarkeppni, sem haldin er árlega í Háskólabíói. Keppendum er ætlað að hanna og smíða tæki til að leysa þær þrautir og hindranir sem fyrir eru lagðar hverju sinni. Keppnin vekur ávallt mikla athygli og sýnir RÚV þátt um keppnina á hverju ári. Marel hefur verið aðalstuðningsaðili keppninnar frá upphafi, eða í rúmlega 20 ár. http://www.velnem.hi.is/honnunarkeppni/
|
 |
Ævar vísindamaður í Stundinni okkar
Ævar vísindamaður hefur umsjón með vísindahorninu í Stundinni okkar í Ríkissjónvarpinu. Ævar gerir mikið af spennandi tilraunum og fræðir krakkana um skemmilegar hliðar á þeim heimi sem við búum í. Enda eru krakkarnir duglegir að senda honum bréf með tillögum að uppfinningum. Marel hefur styrkt gerð þáttanna um Ævar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2009. http://vefir.ruv.is/stundinokkar/
|
 |
Stuðningur við skólastarf í Garðabæ
Árið 2010 gerði Marel þriggja ára samstarfssamning við Garðabæ um eflingu skólastarfs á sviði nýsköpunar, vísinda og raungreina í leik- og grunnskólum bæjarins. Á fyrsta ári samningsinis afhenti Marel leikskólunum í Garðabæ, sem eru níu talsins, hverjum og einum víðsjá og ýmsan annan kennslubúnað. Þá hefur Marel um árabil stutt nýsköpunar- og lampasmíðakeppnir sem Hofsstaðaskóli stendur fyrir. http://gardabaer.is/Skolar/
|