Fréttir
20 ára skráningarafmæli Marel
29. júní eru liðin 20 ár síðan Marel skráði hlutabréf sín á markað. Félagið hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt frá skráningu og er nú stærsta skráða félagið á Nasdaq OMX Iceland miðað við markaðsvirði. Hluthafar Marel eru í dag um 2.200 talsins en þeir voru 242 í lok árs 1992 eða sama ár og félagið var skráð.
Marel hóf starfsemi í lok áttunda áratugarins en var formlega stofnað árið 1983. Á því rekstrarári voru tekjurnar tæpar 20 milljónir króna en námu tæpum 105 milljörðum króna á árinu 2011. Marel hefur því vaxið meira en 5.600 falt sé litið til veltu sem jafngildir 35% vexti á ári, talið í íslenskum krónum. Hjá Marel starfa nú rúmlega 4.000 manns um allan heim, þar af um 480 á Íslandi. Marel rekur framleiðslueiningar á 16 stöðum víðs vegar um heiminn og þjónustu- og söluskrifstöfur á 30 stöðum auk þess að hafa um 100 dreifingaraðila á sínum snærum.
Sigsteinn Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marel: „Það var lykilatriði að skrá Marel á markað á sínum tíma og markaðurinn hefur þjónað þörfum félagsins vel í þessi 20 ár. Við erum nú með yfir 2.200 hluthafa og sumir hverjir hafa fylgt félaginu frá upphafi. Þegar félagið var skráð vorum við með starfsemi í Kanada og Bandaríkjunum en nú er Marel með starfsemi um allan heim. Öflugur innri vöxtur hefur byggst á nýsköpun og kraftmiklu starfsfólki en það skipti þó sköpum að geta sótt fjármagn á hlutabréfamarkaðnum til að ráðast í yfirtökur á traustum og góðum félögum. Við erum þakklát fyrir það traust sem markaðurinn hefur sýnt okkur til þessa.“
Marel á rætur sínar að rekja til rannsóknarverkefnis í Háskóla Íslands þar sem þróuð var tölvuvog fyrir íslenskan fiskiðnað. Marel vogin stuðlaði að hagkvæmni í fiskvinnslu bæði til sjós og lands. Þótt vöruframboð Marel hafi aukist til muna er markmiðið enn hið sama: að vörur fyrirtækisins auki hagkvæmni og skilvirkni í rekstri viðskiptavinanna. Félagið framleiðir nú hátæknibúnað fyrir marga af stærstu matvælaframleiðendum heims í kjúklinga-, fisk- og kjötiðnaði.
Það er vel við hæfi að á þessum tímamótum að Marel opni formlega skrifstofu á Dalvík á morgun til að þjóna fjölmörgum viðskiptavinum sínum á Norður- og Austurlandi. Marel hefur lengi sinnt viðskiptavinum um allt land og er það til marks um mikilvægið að starfsemin á landsbyggðinni er efld með opnun skrifstofunnar á Dalvík. Auk tveggja starfsmanna á Dalvík eru tveir starfsmenn Marel staðsettir á Akureyri.
Marel hefur sett inn upplýsingar um þróun félagsins á síðu fyrir fjárfesta, meðal annars myndbönd og gröf um þróun veltu og starfsmannafjölda.
Opna 20 ára skráningarafmæli Marel síðu (á ensku)
Nánari upplýsingar veitir:
Helga Björk Eiriksdóttir
Fjárfesta- og almannatengill Marel
Netfang: helga.eiriksdottir@marel.com
Sími: 853 8543


