Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

05.12.2011

Á fullu stími til Evrópu

Með Innova MarinePack hugbúnaði frá Marel er íslenskur sjávarútvegur vel í stakk búinn til að hlíta reglugerð Evrópusambandsins um aflaskráningu

Allir sem flytja út fisk til Evrópusambandsríkja verða núorðið að gangast undir reglugerð Evrópusambandsins um skráningu fiskafla. Mikið aðhald er frá kaupendum að fylgja því eftir að afli sé löglega skráður. Marel hefur þróað sértækan hugbúnað, Innova MarinePack, sem einfaldar skráningu aflans um borð í fiskiskipum.

Sérstök aflavottorð þurfa að fylgja öllum sjávarafla sem seldur er til Evrópubandalagsríkja. Vottorðið þarf að innihalda nafn veiðanda og/eða útflytjanda og vera staðfest af íslenskum yfirvöldum.

Reglur Evrópusambandsins voru settar í ársbyrjun 2010 og lúta að tveimur þáttum. Í fyrsta lagi skráningu þyngdar. Svokölluð  5% regla kveður á um hámark 5% yfirvigt á hverjum pakka af fiski á sölutorgi. Hins vegar má ekki muna meiru en 10% á skráðri heildarþyngd hverrar fisktegundar í afla og þeirri þyngd sem opinberir skoðunarmenn mæla. Í öðru lagi þarf að votta að allur eldisfiskur sé löglega alinn án röskunar á vistumhverfi sjávar.

Innova MarinePack lausnin frá Marel auðveldar fiskútflytjendum að uppfylla þessi skilyrði og er einföld í uppsetningu og notkun. Hún nær til skráningar fisktegunda, gæða og stærðarflokka, ásamt upplýsingum um hvenær fiskurinn er veiddur og á hvaða veiðasvæði, löndunarhöfn, veiðarfæri og aðrar skyldar upplýsingar. MarinePack getur líka sent upplýsingarnar sjálfvirkt yfir í e-log hugbúnað skipsins.

Sniðið að þörfum notandans
Það eina sem þarf til að setja upp lausnina er Marel M2200 sjóvog, Innova MarinePack hugbúnaðareining og prentari. Kerfið er hannað í einingum og þurfa notendur því einungis að greiða fyrir þá hluta kerfisins sem þeir nota. Auðvelt er að stækka síðar og bæta við eftir þörfum. Allar upplýsingar um aflann eru skráðar strax, prentaðar út og settar á fiskikörin og liggja því fyrir þegar aflanum er landað á markað eða beint til fiskvinnslustöðva.

 Hægt er að velja búnað sem skráir alla umsýslu aflans frá veiðistað til vinnslu og að endanlegri sölu. Með þessu móti er fullkominn rekjanleiki tryggður og hægt er að kalla fram upplýsingar um tiltekinn afla hvenær sem er. Innova MarinePack kerfið styður allt að fimm skráningarstöðvar og fimm prentara og er einstaklega auðvelt og þægilegt í uppsetningu.

Auk þess að mæta kröfum Evrópusambandsins eru miklir kostir við það að geta fylgt aflanum náið eftir og haft góða yfirsýn yfir alla þætti framleiðsluferlisins á einum stað. Sífellt fleiri fiskframleiðendur um allan heim velja Innova MarinePack vegna sveigjanleikans og áreiðanleikans sem kerfið býður upp á og hversu auðvelt það er í uppsetningu um borð.


 

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0