Fréttir
Afkoma á fjórða ársfjórðungi 2009
Fylgigögn:
| Fréttatilkynning | Reikningar (á ensku) | Kynning (á ensku) |
Vinsamlegast athugið:
Ársreikningur Marel fyrir árið 2009 var kynntur á stjórnarfundi þann 4. febrúar 2009. Marel birtir nú meginniðurstöður rekstrar, efnahags og sjóðstreymis. Ársreikningur hefur ekki verið staðfestur af stjórn og endurskoðendum félagsins. Endurskoðaður ársreikningur 2009 verður lagður fyrir stjórn félagsins til staðfestingar þann 9. febrúar nk. og birtur þann dag. Þetta er gert í samræmi við reglur NASDAQ OMX Iceland hf.
Afkoma ársins 2009
Nýtt ár markar nýtt upphaf hjá Marel

- Tekjur af kjarnastarfsemi árið 2009 námu 434,8 milljónum evra og jukust jafnt og þétt á árinu. Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu.
- Marel hélt áfram að styrkja samkeppnisstöðu sína á árinu með því að einbeita sér að samþættingu samstæðunnar og verulegum niðurskurði í útgjöldum, sem lækkaði kostnaðargrunn rekstursins um 25 milljónir evra.
- Nettó vaxtaberandi skuldir hafa lækkað í 295 milljónir evra (2008: 379 milljónir evra) vegna sterks sjóðstreymis, velheppnaðra hlutafjárútboða og sölu eininga utan kjarnastarfsemi.
- Til að viðhalda tæknilegu forskoti sínu leggur Marel áfram ríka áherslu á rannsóknar- og þróunarstarf.
- Pantanabók styrktist eftir því sem leið á árið og er nú traustari og mun betri en fyrir ári síðan, sem mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og afkomu.
- Skerpt hefur verið á stefnu félagsins með sölu eininga utan kjarnastarfsemi.
Afkoma fjórða ársfjórðungs 2009
Skerpt á stefnu fyrirtækisins og hlutafé aukið
- Tekjur af kjarnastarfsemi á fjórða ársfjórðungi námu samtals 112,5 milljónum evra [Q4 2008: 121,4 milljónir evra].
- EBITDA af kjarnastarfsemi var 12,8 milljónir evra, sem er 11,3% af veltu [Q4 2008: 0,7 milljónir evra; 0,6% af veltu].
- Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 6,9 milljónir evra, sem er 6,2% af veltu [Q4 2008: (5.7) milljónir evra; -4,7% af veltu].
- Verulega hefur dregið úr fjárhagslegri áhættu með útgáfu nýs hlutafjár upp á 41 milljónir evra og myntbreytingu á láni úr íslenskri krónu (að upphæð 66 milljónum evra) í evru. Um 32 milljónir evra úr hlutafjárútboðinu fóru í að greiða niður skuldabréf í íslenskri krónu.
- Sameiningaráform eru komin til framkvæmda; innleiðing á nýjum vörumerkjum og sameining dreifikerfa er hafin og verið er að þróa vörur sem sameina þá tækni sem rekstrareiningarnar búa yfir.
Heildarafkoma
- Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi 2008 námu 135,7 milljónum evra [Q4 2008: 150,5 milljónir evra].
- Heildar EBITDA var 12,0 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2009 [Q4 2008: (0.1) milljónir evra] og heildarrekstrarhagnaður (EBIT) var (19,6) milljónir evra [Q4 2008: (7,4) milljónir evra].
- Tap eftir skatta var 23,0 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2009 [Q4 2008: 23,7 milljónir evra tap), vegna niðurfærslu á bókfærðu verði eigna til sölu utan kjarnastarfsemi.
- Food & Dairy Systems, eining utan kjarnastarfsemi Marel, var seld í janúar 2010. Bókfært verð eignanna var fært niður sem veldur tapi upp á 16,4 milljónir evra. Tekið hefur verið tillit til þess í ársreikningum 2009.
- Carnitech A/S, eining utan kjarnastarfsemi Marel, er í söluferli. Bókfært verð eignanna hefur verið fært niður sem veldur tapi upp á 8 milljónir evra. Tekið hefur verið tillit til þess í ársreikningum 2009.
- Nettó vaxtaberandi skuldir námu 295 milljónum evra [2008: 379 milljónir evra].
Frekari upplýsingar veita:
Erik Kaman, fjármálastjóri
Sími: 563 8072
Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf.,
Sími: 563 8072

