Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

01.02.2012

Afkoma á fjórða ársfjórðungi 2011

Fylgigögn:

Fréttatilkynning Reikningar (á ensku) Gagnvirkir reikningar (nýtt)
Kynning (á ensku) Útsending frá fundi  

Marel kynnir afkomu ársins 2011

Sterkur og arðbær innri vöxtur

Marel Logo

  • Tekjur ársins 2011 námu 668 milljónum evra, sem er 15% aukning samanborið við tekjur af kjarnastarfsemi árið áður [2010: 582 milljónir evra].
  • Leiðrétt EBITDA var 98,0 milljónir evra, sem er 14,7% af tekjum [2010: 88,1 milljónir evra af kjarnastarfsemi, leiðrétt].
  • Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) var 73,2 milljónir evra, sem er 10,9% af tekjum [2010: 64,1 milljónir evra af kjarnastarfsemi, leiðrétt].
  • Hagnaður ársins 2011 nam 34,5 milljónum evra [2010: 13,6 milljónir evra]. Hagnaður per hlut nam 4,70 evru sentum [2010: 1,87 evru sent].
  • Sjóðstreymi er traust og nettó vaxtaberandi skuldir námu 250,5 milljónum evra í lok árs 2011 [2010: 256,7 milljónir evra].
  • Pantanabók er sterk og nam 196,2 milljónum evra í árslok 2011 [2010: 162,2 milljónir evra].

Árið 2011 var mjög gott hjá Marel. Tekjur námu 668 milljónum evra, sem er 15% aukning samanborið við árið á undan. Leiðréttur rekstrarhagnaður var 10,9% af veltu sem er í samræmi við markmið fyrirtækisins um rekstrarhagnað upp á 10-12% af veltu á árinu. Horfur fyrir árið 2012 eru jákvæðar.

Á aðalfundi 2012, sem haldinn verður 29. febrúar nk., mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái 0,95 evru sent greidd í arð á hlut fyrir rekstrarárið 2011. Miðað við fjölda útistandandi hluta nú nemur fyrirhuguð heildararðgreiðsla um 6,9 milljónum evra, sem samsvarar um 20% af hagnaði ársins. Tillagan um arðgreiðslu er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 2011.

Afkoma fjórða ársfjórðungs 2011

Metfjórðungur í tekjum og góð arðsemi

Fjórði ársfjórðungur var framúrskarandi hjá Marel. Tekjur námu 184 milljónum evra, EBITDA nam 28 milljónum evra og EBIT 22 milljónum evra.

Marel Logo

  • Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2011 námu 183,9 milljónum evra, sem er 9,7% aukning samanborið við sama tímabil fyrir ári [Q4 2010: 167,7 milljónir evra].
  • EBITDA var 27,9 milljónir evra, sem er 15,2% af tekjum [Q4 2010: 26,1 milljónir evra].
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var 21,6 milljónir evra, sem er 11,8% of tekjum [Q4 2010: 20,1 milljónir evra].
  • Hagnaður nam 15,0 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi 2011 [Q4 2010: 5,5 milljónir evra].

Marel nýtur áfram góðs af sterkri markaðsstöðu og stöðugu framboði nýrra vara. Nýjar pantanir, að meðtöldum þjónustutekjum, námu 175,9 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi 2011, samanborið við 188,6 milljónir á sama tímabili fyrir ári. Virði pantana nam 196,2 milljónum evra í lok fjórða ársfjórðungs 2011 samanborið við 162,2 milljónir evra í lok fyrra árs.

Lesa fréttatilkynningu í heild sinni


Frekari upplýsingar veita:

Jón Ingi Herbertsson, fjárfesta- og almannatengsl
Sími: 563-8451

Erik Kaman, fjármálastjóri
Sími: 563 8072

Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf.,
Sími: 563 8072

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstraumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0