Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

25.07.2012

Afkoma á öðrum ársfjórðungi 2012

Fylgigögn:

Fréttatilkynning Reikningar (á ensku) Gagnvirkir reikningar (nýtt)
Kynning (á ensku) Útsending frá fundi  

Afkoma annars ársfjórðungs 2012

Mikill vöxtur og lægri framlegð á öðrum ársfjórðungi

Marel Logo

  • Tekjur á 2. ársfjórðungi 2012 námu 186,5 milljónum evra, sem samsvarar 15,2% aukningu samanborið við sama tímabil árið 2011 [161,9 milljónir evra].
  • EBITDA var 18,6 milljónir evra, sem er 10,0% af tekjum [Q2 2011 leiðrétt: 20,9 milljónir evra].
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var 12,2 milljónir evra, sem er 6,5% af tekjum [Q2 2011 leiðrétt: 15,0 milljónir evra].
  • Hagnaður eftir skatta nam 7 milljónum evra [Q2 2011: 0,2 milljónir evra ]. Hagnaður á hlut (e. basic EPS) var 0,96 evru sent [Q2 2011: 0,03].
  • Sjóðstreymi er áfram traust og hreinar vaxtaberandi skuldir voru 262 milljónir evra í lok fjórðungsins samanborið við 248,8 milljónir evra í lok 2. ársfjórðungs 2011.
  • Staða pantanabókar Marel er áfram góð í lok fjórðungsins og nemur 182,6 milljónum evra samanborið við 169 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs 2011.

Velta Marel á öðrum ársfjórðungi var góð og nam 186,5 milljónum evra, sem er 15,2% aukning samanborið við sama tímabil árið 2011. Rekstarhagnaður var 6,5% af veltu á öðrum ársfjórðungi sem er undir markmiði félagsins um 10-12% á árinu. Minni hagnað má rekja til aukins kostnaðar við framkvæmd ýmissa verkefna, aukinna umsvifa í kjölfar áframhaldandi vaxtar og óhagstæðri samsetningu seldra vara. Sé litið á fyrstu sex mánuði ársins er rekstrarhagnaður (EBIT) 9% af veltu og rekstrarmarkmið félagsins er óbreytt 10-12%.

Lesa fréttatilkynningu í heild sinni


Frekari upplýsingar veita:

Helga Björk Eiríksdóttir, fjárfesta- og almannatengsl
Sími: 563 8543

Erik Kaman, fjármálastjóri
Sími: 563 8072

Sigsteinn Grétarsson, aðstoðarforstjóri Marel,
Sími: 563 8072

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstraumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.