Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

01.02.2010

Aukið öryggi með Innova pöntunarkerfinu

Fjölbreytnin í framleiðslu hjá Stakkavík hefur aukist samfara stækkun fyrirtækisins og það hefur kallað eftir flóknari tækjakosti við vinnsluna. Stakkavík fjárfesti í nýrri og fullkominni vinnslulínu ásamt Innova pöntunarkerfi frá Marel.
Innova pöntunarkerfi frá Marel auðveldar alla afgreiðslu pantanna og eykur öryggið. Kerfið virkar þannig að eftir að pöntun berst er hún sett inn í tölvukerfið ásamt nauðsynlegum upplýsingum eins og til dæmis flugnúmer og kerfið gerir okkur meðal annars kleift forgangsraða pöntunum. Á snyrtilínunni eru sérstakir vinnslulyklar fyrir mismunandi afurðir og starfsmenn í pökkuninni breyta þeim til samræmis við hvaða pöntun hefur forgang hverju sinni. Þegar pöntunin kemur frá kaupanda er hún sett inn í pöntunarkerfið og pökkun getur hafist með öllum upplýsingum til frágangs og er þannig tilbúin til sendingar.

Ferlið frá því að pöntunin kemur í hús og þar til hún er tilbúinn til sendingar er allt miklu öruggara með Innova kerfinu en áður og líkur á ruglingi í sendingum hverfandi,” segir Gestur.

Nákvæmt gæðaeftirlit

,,Afköstin hafa aukist gríðarlega enda um gerólíkt vinnsluferli að ræða frá því sem áður var. Einn af kostunum við nýju línuna er að við getum fylgst nákvæmlega með afköstum og nýtingu hjá hverjum og einum starfsmanni og gert gæðaskoðun hvenær sem er. Allt eftirlit er því mikið öruggara og betra,” segir Gestur Ólafsson hjá Stakkavík um nýju vinnslulínuna frá Marel.

Gestur Ólafsson einn af eigendum Stakkavíkur ehf. í Grindavík.
Gestur Ólafsson einn af eigendum Stakkavíkur ehf. í Grindavík.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0