Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Fréttir

Bylting í vinnslu og vinnuaðstöðu

Gunnlaugur Bogason, framkvæmdastjóri hjá Brimbergi ehf. á Seyðisfirði.

Gunnlaugur Bogason,
framkvæmdastjóri hjá Brimbergi ehf.
á Seyðisfirði.

„Fyrir tveimur árum fékk Brimberg ehf. á Seyðisfirði nýja vinnslulínu frá Marel sem hefur bætt vinnuaðstöðu starfsfólks og hraðað allri vinnslu hjá okkur,“ segir Gunnlaugur Bogason, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Brimbergs ehf.

Vinnslulínan tekur á öllu flæði hráefnis í húsinu, allt frá flökkuanarvél og til pökkunar. Öll flök fara í kælikar og þaðan er þeim skammtað sjálfvirkt inn á snyrtilínu sem er með sextán vinnustæðum. Eftir snyrtingu fara afurðirnar sjálfvirkt í hólf til pökkunar, ferskt sér, blokk sér  og svo framvegis. Allt gæðaeftirlit á vinnslulínunni er framkvæmt pappírslaust með M6000 snertiskjá.
 
Bætt vinnuaðstaða
„Með tilkomu vinnslulínunnar varð alger bylting í vinnuaðstöðu hjá okkur. Allir vinnupallar eru stillanlegar, innmötun flaka að vinnustöð er sjálfvirk, ekki þarf lengur að teygja sig eftir flökum eða beygja sig eftir bökkum. Þetta bætir því gríðarlega mikið vinnuaðstöðuna hjá starfsfólkinu sem vinnur við vinnslulínuna.

Afköstin hafa aukist mikið með tilkomu vinnslulínunnar og í dag tekur ekki nema nokkrar mínútur frá því að flökun hefst og þar til að pökkun lýkur. Meðferðin á hráefninu er því allt önnur og miklu minna sem fer í blokk og meira af hávirðisafurðum,” segir Gunnlaugur.

Góð reynsla af tækjum
„Tæki til pökkunar á ferskum fiski og afurðum sem fara í blokk koma einnig frá Marel og hafa reynst mjög vel. Innova hugbúnaðurinn gerir okkur kleift að fylgjast nákvæmlega með nýtingu hráefnisins og hver og einn starfsmaður getur líka fylgst með afköstum sínum og nýtingu samanborið við meðaltalið á skjá sem staðsettur er á línunni.

Reynsla af tækjunum frá Marel er öll hin besta og mjög lítið um bilanir. Ætli næsta skref hjá Brimbergi verið ekki að fjárfesta í tækjum til sjálfvirkrar vigtunar í skammta beint í öskjur. Ég geri fastlega ráð fyrir því að þau tæki komi frá Marel,” segir Gunnlaugur Bogason, framkvæmdastjóri hjá Brimbergi ehf. á Seyðisfirði.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0