Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

13.01.2012

Ferskleikinn í fyrirrúmi

Stöðug nýsköpun gerir viðskiptavinum Marel kleift að tryggja gæði og auka virði frystra afurða

Kröfuharðir neytendur nútímans vilja ferskar vörur sem líta vel út, eru bragðgóðar og næringarríkar. Frysting er þekktasta aðferðin til að tryggja ferskleika matvæla. Marel býður upp á breitt úrval frystibúnaðar fyrir matvælaframleiðendur, bæði með spíral og láréttu færibandi.

Marel leggur mikla áherslu á þróun frystibúnaðar sem þarfnast minna gólfpláss og minni orku en hefðbundnir frystar. Fyrirtækið býður einnig upp á hagkvæmar heildarlausnir sem gera matvælaframleiðendum kleift að hámarka arðsemi á frystum afurðum.

Meiri gæði en áður hefur þekkst
Meðal þeirra margvíslegu nýjunga sem Marel hefur kynnt er Superflow® Easyclean frystirinn sem snöggfrystir afurðir á mjög stuttum tíma með lóðréttu háhraðaloftstreymi, allt að 35 metrar á sekúndu. Þessi frystiaðferð tryggir meiri gæði en áður hefur þekkst hvað varðar útlit, bragð og næringargildi vörunnar. Til samanburðar er loftstreymið í hefðbundnum frystum 8-12 metrar á sekúndu. Þessi nýja tækni gerir matvælaframleiðendum kleift að stytta frystitímann og auka framleiðslugetu með lágmarksrýrnun á vörunni.

Sveigjanleiki og hagkvæmni
Marel býður einnig upp á Arcticflow® frysta með láréttu háhraðaloftstreymi sem tryggir jafna frystingu á afurðinni allri. Þessir frystar nota enn minni orku en frysta einnig mjög hratt.

Hægt er að mæta þörfum þeirra sem vilja sameina kosti Superflow® og Arcticflow® frystanna með því að breyta gataplötum fyrir lofstreymið þannig að hægt er að velja milli lá- eða lóðrétts loftstreymis eftir því hver þörfin er.

Matvælaframleiðendum er því ekkert að vanbúnaði að lækka frystikostnaðinn og auka samtímis framleiðslugetuna og ná þannig forskoti í síharðnandi markaðsumhverfi.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0