Fréttir
Flottar Marel mottur
Marelmenn létu ekki sitt eftir liggja í Mottu-mars liðakeppni Krabbameinsfélags Íslands. Margir notuðu tækifærið til að láta gamla drauma um yfirvaraskegg rætast og fór þátttaka fram úr björtustu vonum, eins og sjá má á heimasíðu keppninnar.
Marel greiðir kr. 3.000 í áheit fyrir hvern starfsmann sem tók þátt. Auk þess stendur fyrirtækið fyrir eigin uppskeruhátíð þann 30. mars næstkomandi þar sem verðlaun verða veitt fyrir flottustu einstaklings mottuna, auk þess sem besta mottuliðið (þ.e. sá starfshópur eða deild innan Marel sem skartar flottustu mottunum). Dómnefndina skipa valinn hópur Marel kvenna ásamt rakara.
Mottu-mars er mánaðarlangt átak Krabbameinsfélagsins um karlmenn og krabbamein. Allur ágóðinn af söfnunarstarfi átaksins verður varið til rannsókna, fræðslu, ráðgjafar og stuðnings við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra.

