Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

20.09.2010

Hugmyndaríkir grunnskólanemar

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Katrín Jakobsdóttir ásamt vinningshöfum.
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Katrín Jakobsdóttir ásamt vinningshöfum.

Alls bárust 1.600 hugmyndir alls staðar að af landinu í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda í ár. Marel er aðal bakhjarl keppninnar sem haldin var í 19. sinn.

Verðlaun voru veitt í lokahófi keppninnar sem fram fór í húsakynnum Marel í gær, sunnudaginn 19. september, að viðstöddu fjölmenni. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaun og flutti hátíðarávarp. Katrín Jakobsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti þátttakendum viðurkenningarskjöl.

Forseti Íslands og Jóel Ingason hugmyndasmiður opna sýningu á hugmyndum barnanna.
Forseti Íslands og Jóel Ingason hugmyndasmiður opna sýningu á hugmyndum barnanna.

Tilgangur keppninnar er að efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni og hvernig þroska megi hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. Keppnisflokkarnir voru sjö talsins  að þessu sinni: almennur flokkur, atvinnuvegir, hugbúnaður, hönnun, slysavarnir, leikföng og orka og umhverfi.

Farandbikarinn, sem veittur er fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í keppninni, hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ.

Þá var Guðrúnarbikarinn afhentur í fyrsta sinn til heiðurs Guðrúnar Þórsdóttur heitinnar sem var ein af upphafsaðilum keppninnar. Dóttir Guðrúnar, Anna Hulda Ólafsdóttir afhenti ungri stúlku, Sigríði Tinnu Sveinbjörnsdóttur bikarinn fyrir framúrskarandi störf í vinnusmiðju NKG 2010.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0