Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

19.12.2011

Í neytendaumbúðir daginn eftir slátrun

Kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga hefur svo til algerlega endurnýjað tækjabúnaðinn hjá sér á undanförnum 8-10 árum.

„Við byrjuðum á að marka ákveðna stefnu sem gengur út að sérhæfa okkur í slátrun og grófri úrvinnslu afurða, sérstaklega sauðfjárafurða. Því næst hófumst við handa við að endurnýja allan búnað og í framhaldi af því var allt sláturferlið endurhannað með það fyrir augum að ná fram mikilli afkastaaukningu,“ segir Ágúst Andrésson, forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS.  

Ágúst Andrésson, forstöðumaður
Kjötafurðastöðvar KS
„Árið 1997 var lágmarksslátrun hjá fyrirtækinu en þá var slátrað um 27.000 kindum samanborið við 110.000 kindur síðastliðið haust. Þetta er gríðarleg breyting og skiptir aukin tækniþróun og sjálfvirkni  sköpum fyrir okkur hvað afköstin varðar.“

Helmingur seldur á erlendan markað
Kjötafurðastöð KS rekur eitt stærsta og best búna sauðfjársláturhús landsins. Í samstarfi við afurðastöðina á Hvammstanga, sem KS á helmingshlut í, sér fyrirtækið um þriðjung af allri sauðfjárslátrun á landinu. Sláturtíðin er um tveir mánuðir á ári og á því tímabili vinna á milli 140-150 starfsmenn hjá fyrirtækinu en aðeins um á 20 hina 10 mánuði ársins.  „Í heildina eru þetta um 3.200 tonn af afurð á ári og er u.þ.b. helmingurinn af því, eða um 1.600 tonn, seldur á erlendan  markað. Þar af er talsvert af skepnunni sem ekki nýtist á innlendum markaði, eins og innmatur, lambaslög, feitur afskurður og sinar. Þetta fer allt meira og minna til Asíu, en stærsti markaður okkar fyrir verðmeiri vörur er Spánn,“ segir Ágúst.

Vinnum kjötið samhliða slátrun
„Miklar endurbætur hafa átt sér stað á úrvinnsluþættinum hjá okkur. Áður var kappkostað að slátra og frysta heila skrokka en núna leggjum við uppúr því að vinna kjötið meira í sláturtíð samhliða slátrun. Við fjárfestum í flæðilínu fyrir pökkun frá Marel sem gerir okkur kleift að pakka kjötinu annað hvort í neytendaumbúðir eða aðrar söluvænar pakkningar daginn eftir slátrun,“ segir Ágúst. „ Með þessu náum við mikilli hagræðingu þar sem að í lok sláturtíðar er allt kjöt meira og minna klárt í sölulegum einingum, í stað þess að vera í heilum skrokkum.“

Innova framleiðsluhugbúnaður frá Marel var innleiddur í framhaldinu og sér hann um alla framleiðslustýringu og vinnslueftirlit. „Innova heldur utan um allt framleiðsluferlið hjá okkur, vogarkerfi, skráningar og pantanir. Í samvinnu við Marel var Innova aðlagað að okkar þörfum og hefur það einfaldað allt birgðahald og pantanaferlið. Áður voru allar skráningar handvirkar sem var heilmikið mál, sértaklega fyrir útflutning, en nú er allt sjálfvirkt og er það mikið gæfuspor fyrir okkur. Innleiðing á Innova hefur haft heilmikla hagræðingu í för með sér og við erum gríðarlega ánægðir með það,“ segir Ágúst.

Næstu skref
„Í dag höfum við endurnýjað alla aðstöðuna hjá okkur, alveg frá réttinni og í gegn um slátrun og úrvinnslu. Næstu skrefin hjá okkur er endurnýjun á aðstöðu til frystingar og við höfum einnig áhuga á að sjá meiri sjálfvirkni í pökkun, þá helst fyrir neytendapakkningar,“ segir Ágúst.

„Það er frábært að hafa alþjóðafyrirtæki eins og Marel hér á landi. Marel býr yfir þekkingu sem fyrirtækið sækir um allan heim og heimfærir yfir á markaðinn hér heima. Við höfum góða reynslu af samstarfi við Marel. Sölumennirnir hlusta á okkar óskir og viðhorf og aðlaga þær lausnir sem þeir bjóða að okkar þörfum,“ segir Ágúst að lokum.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0