Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Fréttir

Innova hugbúnaður fyrir snyrtilínu

Smelltu á myndina
til að stækka

Fisk Seafood á Sauðárkróki var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að taka í notkun Innova hugbúnað fyrir snyrtilínur frá Marel.

Tómas Árdal, yfirverkstjóri hjá landvinnslu Fisk Seafood , segir að Innova hugbúnaðurinn sé allt í senn, upplýsinga-, stýri- og samhæfingarhugbúnaður fyrir innvigtun hráefnis, vinnslulínur og flokkara. Það er því hægt að nálgast mikið magn upplýsinga um nýtingu úr hausun, flökun og af snyrtilínunni gegnum Innova hugbúnaðarkerfið.

,,Hugbúnaðurinn veitir auk þess aðgang að upplýsingum um mismunandi stærða- og gæðaflokka frá þeim sem eru að snyrta fiskinn og auðveldar þannig stjórnendum að fylgjast með afköstum og öðrum þáttum. Reynslan af hugbúnaðinum er mjög góð en helsta breytingin með tilkomu hans er mun meira eftirlit með hráefninu og afurðunum sem úr því fæst, enda vorum við að sækjast eftir auknu og betra eftirliti þegar við ákváðum að taka hugbúnaðinn í notkun. Innova hugbúnaðurinn hefur fullkomlega staðið undir væntingum,” segir Tómas.

Eðlileg uppfærsla og framför

Samhliða upptöku Innova hugbúnaðarins var sett upp ný vinnslulína frá Marel hjá Fisk Seafood. ,,Um er að ræða tuttugu stæða hefðbundna vinnslulínu með fullkominni inn- og útskráningu í gegnum Innova- kerfið. Skráningakerfið eykur möguleikana á að bæta afköstin á snyrtilínunni með því að skoða afköst og nýtingu hjá hveri manneskju á línunni. Úr snyrtingu fer hráefnið svo í stærðaflokkun og pökkun.

Við höfum verið með vinnslulínu frá Marel áður og ýmsar aðrar línur þar á milli en línan sem við erum með frá Marel núna er eðlileg uppfærsla og mikil framför frá því sem áður var. Afköstin á línunni eru mjög góð og línan staðið undir væntingu hvað það varðar,” segir Tómas Árdal, yfirverkstjóri hjá landvinnslu Fisk Seafood á Sauðárkróki.

Tómas Árdal, yfirverkstjóri hjá landvinnslu Fisk Seafood á Sauðárkróki.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0