Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

09.05.2011

Jafnréttisátak skilar sér í nýráðningum hjá Marel

Frá því að Marel undirritaði Jafnréttissáttmála Sameinuðu þjóðanna (e. Women‘s Empowerment Principles) í nóvember síðastliðnum hefur fyrirtækið unnið markvisst að því að auka hlut kvenna í stjórnunar- og sérfræðistörfum.

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hefur átakið þegar skilað sér í þremur nýráðningum en í marsmánuði tóku til starfa konur í stöðum framkvæmdastjóra Marel í Frakklandi, verkefnastjóra á „corporate“ sviði og sýningarstjóra á markaðssviði. (Nánari upplýsingar um þessar nýráðningar er að finna að neðan.) Þar til viðbótar má nefna að í þessum mánuði var gengið frá ráðningu á fyrsta kvenkyns framleiðslustjóra fyrirtækisins á Íslandi og mun hún hefja störf í júní næstkomandi. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra framleiðslu.

Theo Hoen, forstjóri Marel:
„Þetta er hagsmunamál fyrir okkur því að með því að tryggja jafnrétti hjá Marel náum við frekar að laða að bestu starfskraftana hverju sinni. Stöðug nýsköpun er einn af hornsteinum okkar hjá Marel og við vitum að bestu hugmyndirnar spretta uppúr teymisvinnu. En það er ekki nóg að þekkingin sé til staðar í hópnum. Ef það skortir á fjölbreytileika hópsins er líklegt að afraksturinn verði fyrirsjáanlegur.“

Marel varð fyrst íslenskra fyrirtækja, ásamt Deloitte og Rio Tinto Alcan, til að undirrita Jafnréttissáttmálann, en hann er sameiginlegt átak UNIFEM (Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna) og UN Global Compact. Sáttmálinn miðar að því að hvetja fyrirtæki til að fara eftir sjö viðmiðum til að vinna að jafnrétti kynjanna á vinnustað og í samfélaginu almennt. Nú þegar hafa yfir þrjú hundruð alþjóðleg fyrirtæki skrifað undir hann.

Nýráðningar á fyrsta ársfjórðungi

Framkvæmdastjóri í Frakklandi: Þann 1. mars sl. tók Anna Thrap Olsen til starfa sem framkvæmdastjóri Marel í Frakklandi. Anna var áður í forsvari fyrir viðskiptaþróun hjá Tetra Pak sem er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í pökkunar- og vinnslukerfum fyrir drykkjarvörur. Anna hefur einnig gegnt stjórnunarstöðum hjá Kodak. Hún lauk MBA gráðu frá Essec Business School í París þar sem hún býr ásamt fjölskyldu sinni.

Verkefnastjóri: Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri og heyrir undir framkvæmdastjórn Marel. Guðbjörg mun koma að gerð og framkvæmd áætlana á sviði rannsókna og þróunar, auk þess að greina möguleg vaxtartækifæri fyrir fyrirtækið. Guðbjörg lauk MS gráðu í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands árið 2007 og þar áður BS í vélaverkfræði. Hún starfaði áður sem sérfræðingur í greiningu hjá Eyri Invest og við hugverkarétt á lögfræðistofunni Sigurjónsson og Thor.

Sýningarstjóri: Elísabet Austmann Ingimundardóttir hefur verið ráðin sýningarstjóri á markaðssviði þar sem hún mun hafa umsjón með þátttöku Marel í alþjóðlegum vöru- og iðnaðarsýningum. Elísabet gegndi áður stöðu sölu- og markaðsstjóra hjá útgáfufélaginu Birtíngi. Þar áður var hún sölu- og markaðsstjóri hjá heildsölunni Sportís og vörumerkjastjóri hjá Glitni. Elísabet lauk MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og BSc gráðu í alþjóðlegri markaðssetningu frá Tækniháskóla Íslands árið 2003.

FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.