Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

22.11.2011

Kröfur nútímans eru gæði, nákvæmni og áreiðanleiki

Fjölskyldufyrirtækið Eðalfiskur í Borgarnesi nýtir sér vél- og hugbúnað frá Marel til að auka hagræðingu í framleiðslu á ferskmeti

Kristján Rafn Sigurðsson
framkvæmdastjóri, Eðalfisks
Fjölskyldufyrirtækið Eðalfiskur í Borgarnesi er einn af stærstu framleiðendum Íslands á laxi. Fyrirtækið er með  tvö útibú, annað í Borgarnesi þar sem  eldislax er unninn, og hitt í Reykjavík þar sem villtur lax er verkaður. „Við framleiðum úr  750-800 tonnum af laxi árlega, þar af er 80% ferskar afurðir og restin er reyktur eða marineraður lax eftir okkar eigin uppskrift,“ segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins Kristján Rafn Sigurðsson. „Mest af framleiðslu okkar sendum við með flugi á Bandaríkjamarkað, ýmist sem heil eða niðursneidd flök í neytendapakkningum, og  er varan seld þar undir nafninu ‚Iceland Supreme‘.“

Kristján Rafn er enginn nýgræðingur í greininni því hann vann bæði á sjó og landi við ýmis störf tengd sjávarútvegi áður en hann tók við núverandi stöðu hjá Eðalfiski.

Eðalfiskur átti sín fyrstu viðskipti við Marel árið 2005 með kaupum á CT2630 laxaflökunarvél sem býr yfir nákvæmri skurðargetu og tryggir einstaka nýtingu á verðmætu hráefninu. Enn þann dag í dag er CT2630 í hópi afkastamestu og sveigjanlegustu flökunarvéla á markaðnum.

Ábatasöm fjárfesting
„Góðum handflökurum fer fækkandi,“ segir Kristján Rafn en áður en Eðalfiskur fjárfesti í flökunarvélinni var allur fiskur fyrirtækisins handflakaður. Framleiðni fyrirtækisins jókst mikið með tilkomu tækninnar. Í ársbyrjun 2011 keypti fyrirtækið CT2620 laxahausara frá Marel eftir að hafa séð hana kynnta á árlegri laxasýningu Marel í Nørresundby í Danmörku. Kristján Rafn var þess fullviss að þessi viðbót myndi auka möguleika og framleiðslugetu Eðalfisks umtalsvert. Nýi laxahausarinn er algjörlega sjálfvirkur og hausar af mikilli nákvæmni, svo þörfin fyrir vinnuafl minnkar mikið. „Vélin sparar bæði tíma og peninga og borgar sig upp á skömmum tíma,“ útskýrir Kristján Rafn.

Hámarksnýting hráefnis
Eðalfiskur er jafnframt með pökkunarstöðvar frá Marel til að að halda utan um merkingu og skráningu á pöntunum til viðskiptavina. Pökkunarstöðvarnar eru útbúnar M6000 snertiskjám, M2200 vogum og límmiðaprentarum en heilinn á bakvið tækin er Innova framleiðsluhugbúnaðurinn frá Marel. Innova safnar öllum upplýsingum um afurðina og eru þær prentaðar út á miða fyrir hvern pakka. Auk þess eru upplýsingar um afköst, gæði og nýtingu geymdar í gagnabanka og tengdar vörunni svo auðvelt er að nálgast upplýsingarnar hvenær sem er.

Innova hugbúnaðurinn sparar tíma og er áreiðanlegur og nákvæmur,“ segir Kristján Rafn. „Þar sem við erum að vinna með ferskmeti er það lykilatriði fyrir okkur að vera sveigjanleg og geta brugðist skjótt við ef óskir viðskiptavina okkar breytast, sem oft gerist með litlum fyrirvara. Vörurnar frá Marel hafa gert okkur kleift að hafa þennan sveigjanleika,“ segir Kristján Rafn framkvæmdastjóri Eðalfisks að lokum.

CT 2620 laxahausarinn er algjörlega sjálfvirkur og vinnur af mikilli nákvæmni. 

  • Einfaldur í notkun
  • Minnkar framleiðslukostnað
  • Bætir nýtingu
  • Afkastar allt að 15 fiskum á mínútu
  • Stillanlegur eftir stærð fisks
FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0