Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

12.03.2012

Landsbankinn hyggst selja allt að 5 prósent eignarhlut í Marel

Landsbankinn hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu allt að 5% eignarhlut í Marel hf. Um er að ræða þegar útgefin bréf í Marel, sem eru í eigu Landsbankans, en alls heldur Landsbankinn nú á 6,84% eignarhlut í Marel.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með sölu hlutanna, sem mun fara fram í útboði þar sem notuð er undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar, í samræmi við heimild í c-lið, 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Lágmark hvers tilboðs er 100.000 hlutir að nafnverði í Marel, en lágmarksgengi í útboðinu verður 138 krónur á hlut og hámarksgengi verður 142 krónur á hlut.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast tilboðsgjöfum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ræður söluverðinu. Nánari útboðsskilmálar, ásamt tilboðseyðublöðum, verða aðgengilegir hjá Markaðsviðskiptum Landsbankans eftir lokun viðskipta í Kauphöll í dag, mánudag.

Tekið verður við tilboðum frá og með þriðjudeginum 13. mars 2012 kl. 10:00 (GMT), en tilboðsfrestur rennur út miðvikudaginn 14. mars 2012 kl. 16:00 (GMT). Niðurstöður útboðsins verða birtar í Kauphöll að loknu útboði.

Nánari upplýsingar veita:

Helgi Þór Arason, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans. Sími: 410 7335
Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Markaða og Fjárstýringar Landsbankans. Sími: 410 7313

FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.