Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn



Fréttir

Marel á Seafood Processing Europe í Brussel

Marel býr yfir þekkingu og reynslu – og fjölbreyttu úrvali tækjabúnaðar og kerfa – sem fiskvinnslufyrirtæki geta reitt sig á til að geta brugðist við síbreytilegum kröfum viðskiptavina sinna. Á bás okkar á Seafood Processing Europe (nr. 4-6227) sýnum við úrval þeirra framsækinna lausna sem við höfum fram að færa.

„Ofurkældur“ fiskur:

Viðskiptavinum gefst einstakt tækifæri til að sjá með eigin augum hvernig ofurkæling umbreytir hefðbundinni vinnslu á fiski. Ofurkæling, líka þekkt sem „undirkæling“, er byltingarkennd kælitækni sem gerir kleift að kæla fiskinn niður fyrir frostmark án þess þó að frysta hann. Holdið á fiskinum verður stinnara en ella og getur þar með betur staðist alla meðhöndlun í vinnsluferlinu. Þannig skemmast flökin t.d. síður þegar roðið er rifið af. Ofurkæling skilar umtalsvert verðmætari vöru þar sem mun hærra hlutfall hráefnisins fer í aðalafurð. Þar að auki lengist geymsluþol vörunnar um alla vega tvo daga.

 

 

Laxavinnsla: 

Við sýnum nýjasta flökunarbúnaðinn og beinatínsluvélina okkar, auk háþróaðra skurðarlausna og sjálfvirks búnaðar sem hleður skömmtum af fyrirfram skilgreindri þyngd beint á bakka. Þá kynnum við nýju GEBA SC125V skurðarvélina sem sker sneiðar af fyrirfram skilgreindri þyngd og nýja „D-cut“ vél, sem sker reyktan lax í sneiðar hraðar en nokkur önnur vél á markaðnum.

   

 

Vigtun, flokkun og skömmtun:

Á Marel básnum munum við sýna fjölbreytt úrval búnaðar til að mæta flestum þörfum fiskverkenda við vigtun, flokkun og að búa til skammta. Jafnframt sýnum við nýjustu verðmerkivogirnar okkar, þar á meðal nýju OCM 9500 vélina sem ætluð er til að vigta þyngri bakka eða kassa. Tækið vigtar með sjálfvirkum hætti allt að 40 kassa á mínútu, metur verðið á þeim og verðmerkir þá.

   

 

Frysting:

Við sýnum Marel IQF spíralfrystinn sem byggir á lóðréttu loftstreymi. Þessi frystir er sparnýtinn á orku, dregur úr þornun vörunnar og tryggir jafnt hitastig hennar. Þá er hægt að tengja frystinn við SCADA og Innova hugbúnaðarkerfi.

   

 

Lágþrýstimótun:

Byltingarkennda RevoPortioner skurðarvélin beitir lágþrýstingi við skurð á fiskvörum. Þessi aðferð tryggir að formgerð og áferð hráefnisins er viðhaldið og að lokaafurðin er ávallt eins í laginu, jafn stór og jafn þung og af sömu háu gæðunum. Vinsældir RevoPortioner-vélarinnar byggja einnig á hárri afkastagetu, áreiðanleika og lítilli viðhaldsþörf.

 

 

Innova hugbúnaður:

Síðast en ekki síst bjóðum við gestum inn í Innova „stjórnklefann“ okkar þar sem við munum sýna hvernig Innova fylgist með hverju þrepi í framleiðsluferlinu og sér stjórnendum fyrir öllum þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um framleiðsluna.

Alla daga sýningarinnar frá kl. 16:00 bjóðum við gestum uppá hressandi ofurkælda drykki og léttar veitingar.

Við hlökkum til að sjá þig í Brussel!

Nánar um sýninguna á ensku

Frír aðgangur fyrir viðskiptavini:

  • vefskráning: https://web1.accureg.com/ese10_prod/webmain/RegisterIn.asp?SC=2
  • velja tungumál
  • fyllið út upplýsingar í Standard Registration Form OG setjið inn VIP Priority Code : 100410
  • staðfesting verður send á tölvupósti
  • frían aðgangsmiða má sækja í miðasölu sýningarinnar
FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of 60 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0