Fréttir
03.01.2012
Marel gaf dagdeild blóð- og krabbameinslækninga vog
Eins og hefð er orðin fyrir lætur Marel andvirði jólakorta og gjafa til innlendra viðskiptavina renna til góðgerðarmála í ár. Í þetta sinn gaf félagið dagdeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala Háskólasjúkrahúsi fullkomna líkamsvog fyrir sjúklinga.
Vogin eru sérhönnuð og framleidd af Marel.
Valdimar Gestsson, þjónustustjóri Marel á Íslandi, og Óskar Óskarsson, sölustjóri Marel á Íslandi, afhentu Gunnhildi Magnúsdóttur, deildarstjóra dagdeildar blóð- og krabbameinslækninga, gjöfina.


