Fréttir
Marel gefur 4. bekkingum í Garðabæ glósubók Ævars
Áhuginn skein úr andlitum 4. bekkinga í Flataskóla í Garðabæ þegar Ævar vísindamaður úr Stundinni okkar heimsótti skólann fyrr í vikunni og framkvæmdi nokkrar spennandi tilraunir. Ævar heimsækir einnig 4. bekkinga í hinum þremur grunnskólum bæjarins í vikunni.
Marel hefur ákveðið að nota tækifærið og gefur öllum krökkunum í árganginum í Garðabæ nýútkomna Glósubók Ævars. Allir alvöru vísindamenn eiga glósubók og bókin hans Ævars er stútfull af vísindatilraunum fyrir forvitna krakka. Bókin hefur auk þess að geyma upplýsingar um alls kyns furðuleg fyrirbæri, viðtöl við íslenska vísindamenn og bréf frá krökkum á öllum aldri, svo eitthvað sé nefnt.
Marel hefur styrkt gerð þáttanna um Ævar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2009 og styrkir einnig útgáfu glósubókarinnar nú fyrir jólin.
Þá á Marel í samstarfi við Garðabæ og gerði þriggja ára samning við bæjarfélagið árið 2010 um eflingu skólastarfs á sviði nýsköpunar, vísinda og raungreina í leik- og grunnskólum bæjarins. Fyrirtækið hefur m.a. gefið skólunum tækja- og kennslubúnað. Marel hefur um árabil veitt fjölbreyttum verkefnum á þessu sviði brautargengi á hverju ári, frá leikskóla uppí háskóla.
![]() |
![]() |




