Fréttir
Marel selur "Ofurkæla"
![]() |
|
| „Sölustjórarnir hittust til að fara yfir málin: Óskar Óskarsson frá Marel, Einar Brandsson og Sigurður Skúlason frá Skaganum ásamt Guðjóni Stefánssyni frá Marel.“ |
Sjóflutningur loksins raunhæfur valkostur í útflutningi á ferskum fiski.
Mikið af þeim fiski sem fluttur er út með flugi hefur legið undir skemmdum í Keflavík vegna raskana á flugsamgöngum undanfarna daga. Eitthvað af þessu dýrmæta hráefni hefði verið hægt að senda ferskt sjóleiðina á markaði í Evrópu hefði fiskurinn verið „ofurkældur“.
Ofurkæling, líka þekkt sem „undirkæling“, er byltingarkennd kælitækni í vinnslu á fiski sem gerir kleift að kæla fiskinn niður fyrir frostmark án þess þó að frysta hann. Við það lengist geymsluþol vörunnar um minnst tvo daga. Sjóflutningur, sem er bæði ódýrari og umhverfisvænni en flug, verður þar með raunhæfur valkostur fyrir útflytjendur.
Þessi tækni á því mikið erindi við íslenska markaðinn og hafa Marel og Skaginn komist að samkomulagi um að Marel sjái alfarið um sölu á „Ofurkælum“ á Íslandi sem og á öðrum markaðssvæðum. Með samkomulaginu gefst Marel kostur á að flétta Ofurkælana inn í vinnslukerfin sín og tryggja þannig hámarks hagkvæmni og arðsemi vinnsluferlisins í heild.
Auk lengra geymsluþols eru ávinningarnir af kerfinu margvíslegir. Holdið á fiskinum verður stinnara en ella og getur þar með betur staðist alla meðhöndlun í vinnsluferlinu. Þannig skemmast flökin t.d. síður þegar roðið er rifið af. Þá er rýrnun vegna vökvataps lágmörkuð. Ofurkæling skilar þar af leiðandi verðmætari vöru þar sem mun hærra hlutfall hráefnisins fer í aðalafurð. Auk þess er minni eða enginn þörf á ís til að kæla fiskinn í flutningi.
Marel mun sýna Ofurkælinn á Seafood Processing Europe sýningunni í Brussel í næstu viku
(27.-29. apríl) á bás 4-6227.
Frekari upplýsingar veita:
Óskar Óskarsson, sími: 825 8209, oskar.oskarsson@marel.com
Guðjón Stefánsson, sími: 825 8015, gudjon.stefansson@marel.com


