Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

04.02.2010

Marel selur Stork Food & Dairy Systems

Marel hefur komist að samkomulagi við hollenska fjárfestingafélagið Nimbus um sölu á Food & Dairy Systems deild Stork Food Systems, að undanskilinni starfsemi hennar á Spáni.

Salan á Food & Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi fyrirtækisins, er hluti af áætlun Marel um að leggja áherslu á arðsemi og innri vöxt í kjarnastarfsemi en hún snýr að vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi, auk frekari vinnslu. Marel er í fararbroddi á heimsvísu, með um 15% markaðshlutdeild, í þróun og sölu á háþróuðum búnaði og kerfum fyrir þessar greinar matvælaiðnaðarins.

Bókfært verð eignanna hefur verið fært niður sem veldur tapi upp á 16,4 milljónir evra, aðalega vegna afskrifta viðskiptavildar og endurmetinna eigna, og hefur verið tekið tillið til þess í ársreikningum fyrir 2009.

Theo Hoen, forstjóri Marel:
„Markmið Marel eftir kaupin á Stork Food Systems í maí 2008 hefur verið að auka áhersluna á kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Starfsemi Stork Food & Dairy Systems fellur utan þess ramma og hefur einingin því verið skilgreind sem utan kjarnastarfsemi.

Stork Food & Dairy Systems hefur gengið í gegnum velheppnaða endurskilgreiningu og endurnýjun á vörulínum fyrirtækisins, þökk sé starfsfólki og hæfileikaríku stjórnendateymi. Við erum þess fullviss að fyrirtækið verði í góðum höndum hjá Nimbus.

Hvað Marel varðar er þetta mjög jákvætt skref í þá átt að auka enn frekar áherslu á kjarnastarfsemi og styrkja stöðu okkar sem markaðsleiðtogi.“

Starfsemi Stork Food & Dairy Systems snýr aðalega að þróun, framleiðslu og markaðssetningu á vinnslu- og fyllingarlínum fyrir mjólkurafurðir, ávaxtasafa og fljótandi matvæli. Árið 2009 stóð einingin (að frátalinni starfsemi henna á Spáni) fyrir 11% af tekjum Marel, með veltu upp á 61 milljónir evra.

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila.

FyrriNæsta


Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.

v1.0