Fréttir
Marel styður Ólympíufara í eðlisfræði 2012
Um helgina hélt landslið Íslands utan til þátttöku í alþjóðlegu Ólympíukeppninni í eðlisfræði, IPHO 2012, sem að þessu sinni er haldin í Eistlandi. Lið Íslands þetta árið skipa fimm ungmenni, auk tveggja leiðbeinenda, er að venju voru valin í lokakeppni eðlisfræðikeppni framhaldsskóla á Íslandi. Keppnin verður haldin dagana 15.-24. júli og hefur íslenska liðið undirbúið sig í sumar með aðstoð kennara og nemenda í Háskóla Íslands, bæði fyrir bóklega- og verklega hlutann. Í haust munu svo liðsmenn landsliðsins setjast á skólabekk í Háskólanum í eðlisfræði- og verkfræðigreinum.
Raungreinar eru einn af máttarstólpum nýsköpunarstarfs og Marel hefur á undanförnum árum hvatt til nýsköpunar með stuðningi við nemendur á öllum skólastigum. Marel ákvað því að veita hópnum styrk til þátttöku í keppninni. Einn þeirra er Freyr Sverrisson: „Keppnin getur veitt þátttakendum brautargengi til framtíðar auk þess sem tækifæri gefst til að deila og miðla þekkingu á sviði eðlisfræði á alþjóðlegum vettvangi“. Í fyrra hafnaði Ísland í þriðja sæti og hlaut tvenn heiðursverðlaun. Það verður því spennandi að sjá hvernig landsliðinu vegnar þetta árið.

Landslið Íslands í Ólympíukeppninni í eðlisfræði 2012 : Stefán Alexis Sigurðsson, Hólmfríður Hannesdóttir, Pétur Rafn Bryde, Freyr Sverrisson og Atli Þór Sveinbjarnarson.


