Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

22.06.2012

Marel veitir nemendum Hofsstaðaskóla viðurkenningu í nýsköpunarkeppni

Við útskrift nemenda í Hofsstaðaskóla nýverið veitti Marel nokkrum þeirra verðlaun í nýsköpunar- og lampasamkeppni skólans. Á hverju ári hefur hluti af smíða- og nýsköpunarkennslu skólans falist í því að efna til samkeppni um bestu hugmyndirnar í sköpunarsmiðju 5. bekkjar og hönnun lampa úr endurunnu efni í 6. bekk.

Við útskriftarathöfn föstudaginn 8. júní fengu þeir nemendur sem áttu bestu hugmyndirnar sem og lampahönnunina afhenta verðlaunagripi og veglegar myndavélar frá Marel. Það var Nótt Thorberg, markaðsstjóri Marel á Íslandi,  sem afhenti verðlaunin fyrir hönd fyrirtækisins: „Marel vill leggja sitt af mörkum þegar kemur að kennslu á sviði raungreina og náttúruvísinda. Við teljum  mikilvægt fyrir framtíð fyrirtækisins og landsins að tækni- og iðngreinar séu öflugar og framsæknar.“

Í gildi er samstarfssamningur milli Marel og Garðabæjar um eflingu nýsköpunar, vísinda og raungreina í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Marel hefur um alllangt skeið lagt metnað í að rækta hugmyndaauðgi barna og unglinga, sem og þeirra sem eldri eru. Á hverju ári veitir fyrirtækið fjölbreyttum verkefnum á sviðum nýsköpunar og menntunar í verk- og raungreinum brautargengi.

Mynd: Verðlaunahafar í Nýsköpunarkeppninni ásamt Sædísi Arndal kennara í Hofsstaðaskóla og Nótt Thorberg frá Marel.

FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.