Fréttir
Móttaka hjá HB Granda
Blúsband Marel og húshljómsveit HB Granda héldu uppi stuðinu í móttöku sem HB Grandi efndi til um síðustu helgi, m.a. til að fagna uppsetningu á nýrri flæðilínu frá Marel. Hátt í 250 starfsmenn HB Granda og aðrir gestir skemmtu sér konunglega í samkvæminu sem haldið var í Víkinni, sjóminjasafninu í Reykjavík.
Nýja línan frá Marel er stærsta og flóknasta vinnslukerfi sem sett hefur verið upp á Íslandi. Um er að ræða 24-stæða snyrtilínu, auk nýrrar tveggja brauta bitaskurðarvélar, sem bætist við þær þrjár sem fyrir eru. Verður hægt að auka afköst í bitaskurði til muna við þessa viðbót. Einnig hafa verið settar upp fjórar QC M6000 gæðaskoðunarstöðvar sem munu gera gæðaeftirlit rafrænt og auðvelda allt aðgengi að gæðaskráningum.
Línan kom í hús á miðvikdagskvöldi í fyrstu viku janúarmánaðar og var tekin í notkun strax næsta mánudagsmorgun. Nýja línan kemur í stað 13 ára gamallar línu frá Marel.
Fjöldi starfmanna HB Granda hefur verið á námskeiðum hjá Marel til að geta nýtt sér þá möguleika sem flæðilínan býður upp á til bættrar framleiðslu- og gæðastýringar.
Myndir úr móttökunni
Smelltu á myndirnar til að stækka
|
|
|
|
||||||
|
|
|
|
||||||
|
|
|
|
||||||
|
|
|
|
||||||
|
|
|
|
||||||
|
|
|
|
Myndir/HB Grandi: Kristján Maack.

