Fréttir
Niðurstöður aðalfundar Marel
„Ég er hreykinn af þeim árangri sem stjórnendur og starfsfólk Marels náði á árinu 2009, við um margt erfiðar aðstæður,“ sagði Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel, í ávarpi sínu á aðalfundi Marel sem fram fór í dag. „Fjármálakreppan sem hófst 2008, leiddi til efnahagsniðursveiflu af meiri styrk en við höfum séð í áratugi. Skýr merki eru um að kreppunni sé lokið, iðnframleiðsla fer vaxandi á ný og fjármálamarkaðir hafa tekið við sér að nýju.“
„Marel er í einstakri stöðu til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini sína og hluthafa á næstu árum. Okkur hefur tekist að gjörbreyta samkeppnismynstrinu á þeim markaði sem Marel starfar á. Marel er óumdeildur heimsleiðtogi á sínu sviði, með 15% markaðshlutdeild á heimsvísu í þjónustu við kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnað með aukinn fókus á áframvinnslu matvæla.“
Þá nefndi Árni Oddur að þau fyrirtæki sem keypt höfðu verið á undanförnum árum hefðu verið samþætt í eitt fyrirtæki á árinu með fjórar meginstoðir – þjónusta við kjöt, kjúkling, fiskiðnað og áframvinnslu. „Það gaf færi á að hagræða vel í rekstri og lækka kostnaðargrunn félagsins til framtíðar… og í dag er fyrirtækið með meiri fókus og viðbragðsfljótari að þjónusta ört vaxandi þarfir alþjóðaviðskiptavina.“
Atvinnugrein okkar hefur vaxið síðustu 20 árin umtalsvert hraðar en heimshagvöxtur, sagði Árni Oddur, og er spáð 4-7% vexti til framtíðar ekki síst á nýmörkuðum þar sem Marel treystir sífellt stöðu sína.
„Til að tryggja að verðmyndun hlutabréfa Marels verði traustari og auka enn áhuga erlendra fjárfesta á félaginu stefnum við ótrauð að tvíhliða skráningu hlutabréfanna í evrópskri Kauphöll til viðbótar við þá íslensku.“
Að lokum sagði Árni Oddur að Marel væri staðráðið í ná árangri og settum markmiðum frá og með árinu 2010.
Theo Hoen, forstjóri Marel
„Marel er nú leiðandi á sínu sviði á heimsvísu eftir velútfærða áætlun um hraðann ytri vöxt,“ sagði Theo Hoen, forstjóri Marel, í ávarpi sínu. „En það er ekki okkar aðalmarkmið að vera stærst. Við viljum frekar vera þekkt fyrir að vera BESTA fyrirtækið í greininni. Það er einmitt það sem við höfum verið að vinna að á undanförnu ári, að skapa þann grunn sem munu gera okkur kleift að vera best.“
Samþykktir fundarins
Aðalfundurinn samþykkti tillögu stjórnar um að greiða ekki út arð vegna reikningsársins 2009. Þá var samþykkt að stjórnarlaun og starfskjarastefna félagins fyrir árið 2010 verði óbreytt frá fyrra ári.
Samþykkt var að breyta nafni félagsins í Marel hf. Einnig var samþykkt að fjölga stjórnarmönnum félagsins úr 6 í 7-9. Þrír nýir stjórnarmenn voru kjörnir til viðbótar við þá sem fyrir voru en þeir eru Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Theo Bruinsma og Smári Rúnar Þorvaldsson.
Samþykkt var að veita stjórn félagins heimild til útgáfu nýrra hluta í tengslum við kaupréttarsamninga starfsmanna að nafnverði allt að kr. 45.000.000. Einnig var samþykkt heimila stjórninni að gefa út jöfnunarhluti á yfirstandandi reikningsári þannig að hlutafé félagsins verði allt að fimmfaldað, eða um samsvarandi fjárhæð í evrum hafi hlutafé félagsins verið breytt í evrur, áður en heimild þessi er nýtt.
Aðalfundurinn veitti félaginu einnig heimild að kaupa allt að 10% af eigin hlutafé á gengi sem sé ekki hærra en 10% yfir og ekki lægra en 10% undir skráðu meðalgengi bréfa félagsins tveimur vikum á undan kaupunum.

