Fréttir
Ný þjónustuskrifstofa Marel á Dalvík
| Berg, Menningarhús Dalvíkur |
Ný þjónustuskrifstofa Marel á Dalvík var opnuð föstudaginn 29. júní síðastliðinn.
Starfsmennirnir Ari Baldursson og Haukur Arnar Gunnarsson munu sjá um að þjónusta fjölmarga viðskiptavini Marel á Norður- og Austurlandi.
Það var mjög við hæfi að skrifstofan opnaði þann 29. júní, þar sem 20 ára skráningarafmæli Marel í Kauphöll Íslands var fagnað sama dag.
Sú staðreynd að opnun skrifstofu í sjávarútvegsbænum Dalvík hefur tilvísun í upphafsár Marel, þegar meginverkefnið var þróun á rafrænum vigtunarbúnaði fyrir sjávarútveginn hér á landi.
Nótt Thorberg hafði veg og vanda að skipulagningu hátíðarinnar sem fram fór í Menningarhúsinu Bergi og Berta Daníelsdóttir leiddi dagskrána. Meðal annarra ræðumanna voru bæjarstjórinn Svanfríður Jónasdóttir, Pétur Guðjónsson og Helga Björk Eiríksdóttir frá Marel, Kristín Jóhannsdóttir frá Kauphöll Íslands og Júlíus Júlíusson, framkvæmdarstjóri Fiskidagsins Mikla á Dalvík.
Ari Baldursson steig á stokk með gítarinn sinn áður en Marel Blues Project spilaði fyrir dansi.
Nánari upplýsingar veitir:
Berta Daníelsdóttir, General Manager Sales
Netfang: berta.danielsdottir@marel.com
Sími: 563 8092
![]() |
![]() |
|
| Berta leiðir athöfnina | Helga Björk og Kristín Jóhannsdóttir |
![]() |
| Svanfríður bæjarstjóri og Ari |
![]() |
| Pétur Guðjónsson tekur til máls |






