Fréttir
03.04.2012
Nýr sölustjóri hjá Marel á Íslandi
Þann 29. mars hóf Valdimar Gunnar Sigurðsson störf sem sölustjóri hjá sölu- og þjónustuskrifstofu Marel á Íslandi . Valdimar mun starfa náið með Óskari Óskarssyni sölustjóra við sölu til sjávarútvegarins ásamt því að sinna kjöt- og kjúklingaiðnaði hjá Marel.
Valdimar er málarameistari að mennt, þá hefur hann diplóma í verslunarstjórnun og stundar nám í sjávarútvegsfræði. Hann hefur verið til sjós, unnið sem málarameistari og starfað í sölu-og markaðsmálum í fjölmörg ár.
Á næstu vikum munu Valdimar og Óskar verða á ferðinni um landið og heimsækja viðskiptavini Marel.


