Fréttir
Opið hús hjá Marel
Við bjóðum starfsfólki í matvælaframleiðslu á Íslandi á opið hús hjá Marel þann 15. janúar 2010, klukkan 14:00.
Matvælaiðnaðurinn er í dag ótvírætt orðinn að hátækniiðnaði og með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel skipað sér í framvarðarsveit í þróun á búnaði fyrir vinnslu á fiski, kjúklingi og kjöti.
Sérfræðingar okkar kynna framsæknar nýjar tækja- og hugbúnaðarlausnir til að hámarka nýtingu, afköst og gæði. Í sýningarrými okkar kynnum við allt það nýjasta í Innova hugbúnaði, gæðaeftirlitskerfi, verðmerkivogir, beinaleitarvél í kjúklingavinnslu, vél til að himnudraga kjöt og margt fleira.
Við bjóðum gesti einnig velkomna í framleiðslusal þar sem stærsta laxavinnslukerfi sem Marel hefur ráðist í er í smíðum.
Takið daginn frá, þiggið góðar veitingar og spjall við þá sem þekkja þitt fag.



