Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

04.04.2011

RóRó sigrar Gulleggið 2011

Sprotafyrirtækið RóRó sigraði í frumkvöðlakeppni Innovit um Gulleggið 2011, en Marel var einn af bakhjörlum keppninnar í ár.

RóRó er viðskiptahugmynd Eyrúnar Eggertsdóttur sem hefur fundið upp tæki sem hjálpar ungbörnum að sofa betur, líða betur og eykur öryggi þeirra. Eyrún vinnur nú að því að vinna hugmyndinni brautargengi á alþjóðamarkaði og sækja um einkaleyfi. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti sigurlaunin við fjölmenna athöfn á Háskólatorgi laugardaginn 3. apríl.

Öflugar athafnakonur röðuðu sér einnig í önnur verðlaunasæti, en í 2. sæti varð sprotafyrirtækið Puzzled by Iceland, sem stofnað var af Guðrúnu Heimisdóttur og Þóru Eggerstdóttur. Í þriðja sæti varð fyrirtækið Pink Iceland sem stofnað var af Evu Maríu Þórarinsdóttur Lange og Birnu Hrönn Björnsdóttur og rekur ferðaþjónustu sem höfðar sérstaklega til samkynhneigðra.

Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á heimasíðu Innovit.

FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.