Fréttir
Snilldarlausn Marel var gítartré
![]() |
| Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhendir verðlaunin fyrir bestu hugmyndina. |
Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, lauk í gær með athöfn í Menntamálaráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti verðlaun fyrir bestu hugmyndina, frumlegustu hugmyndina og besta myndbandið.
Þátttakendur í keppninni áttu að freista þess að gera sem mest virði úr einföldum hlut sem í þetta skiptið var herðatré. Virðið gat verið af margvíslegum toga, félagslegt, tilfinningalegt, fjárhagslegt, nytsamlegt, í þágu umhverfisins eða í rauninni hvað sem er. Þátttakendur áttu svo að skila inn myndbandi þar sem hugmyndinni væri gerð skil. Hugmyndirnar sem komu fram voru afar fjölbreyttar og voru engar tvær þeirra eins.
Hægt er að skoða vinningsmyndböndin á vefsíðu keppninnar, www.snilldarlausnir.is
Besta hugmyndin: Verðlaunin hlaut Valdís Steinarsdóttir, nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð, en henni tókst að búa til nýstárlegan gítarstand, eða „gítartré“. Fékk hún kr. 100.000 að launum.
Frumlegasta hugmyndin: Verðlaun hlutu Elís Rafn Björnsson og Ari Páll Ísberg frá Verzlunarskóla Íslands. Þeirra hugmynd gekk út á að nota vírherðatré við söfnun áldósa til endurvinnslu. Hlutu þeir kr. 25.000 í verðlaun ásamt aukaverðlaunum.
Besta myndbandið: Kristinn Pálsson, einnig frá Verzlunarskóla Íslands, hreppti hnossið fyrir afar fagmannlega unnið myndband. Hann kynnti nýja leið til að hengja upp fataflíkur á herðartrjám án þess að þurfa stöng til að hengja upp á. Kristinn hlaut kr. 25.000 í verðlaun ásamt aukaverðlaunum.
Dómnefndina skipuðu: Ásgeir Ásgeirsson, fyrir hönd Marel; Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona og athafnakona; og Kristján Freyr Kristjánsson, fyrir hönd Innovit.
Snilldarlausnir Marel var einn af meginviðburðum Alþjóðlegu Athafnavikunnar á Íslandi.



