Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

16.11.2011

Snilldarlausnin var náttborð

Katrín Jakobsdóttir, Mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti í gær verðlaun í Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, fyrir árið 2011. Er þetta í þriðja sinn með keppnin er haldin í tengslum við Alþjóðlega athafnaviku sem nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Innovit stendur fyrir.

Marel hefur verið bakhjarl keppninnar frá upphafi. Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samtök atvinnulífsins veita keppninni einnig stuðning.

Í Snilldarlausnum Marel er framhaldsskólanemum falið það verkefni að gera sem mest virði úr fyrirfram ákveðnum hlut. Árið 2009 var hluturinn herðatré, í fyrra var það pappakassi en í ár var það dós sem lék aðalhlutverkið í keppninni.

Allir vinningshafar
Sigurvegarnir í ár voru eftirfarandi:

Snilldarlausnin 2011
http://www.youtube.com/watch?v=v5dkH1II3kA
Tillaga: Náttborð
Verðlaun: 100.000 kr.
Skóli: Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Nöfn: Guðmundur Hermann Salbergsson, Sigurður Jón Sigmundsson, Jón Gunnar Sæmunsson, Haukur Örn Harðarsson.

Frumlegasta hugmyndin
http://www.youtube.com/watch?v=pgJ2zSLNoSs
Tillaga: Þakrennuviðgerð
Verðlaun: 50.000 kr.
Skóli: Menntaskólinn í Reykjavík
Nafn: Rebekka Jenný Reynisdóttir

Flottasta myndbandið
http://www.youtube.com/watch?v=ExurJcdCCqo
Tillaga: Dósastrengur
Verðlaun: 50.000 kr.
Skóli: Verzlunarskóli Íslands
Nöfn: Haukur Kristinsson og Árni Steinn Viggósson

Líklegast til framleiðslu (aukaverðlaun sem Samtök atvinnulífsins veita)
http://www.youtube.com/watch?v=DadxR2Z91bY
Tillaga: Hleðslutækjahaldari
Verðlaun: 50.000 kr.
Skóli: Menntaskólinn á Akureyri
Nöfn: Steinar Eyþór Valsson,  Agnes Eva Þórarinsdóttir, Harpa Lind Konráðsdóttir, Kolbrún Helga Hansen, Sigrún Helga Andrésdóttir.

Stefán Þór Helgason var umsjónarmaður keppninnar en dómnefndina skipuðu Ásgeir Ásgeirsson, fulltrúi Marel, Diljá Valsdóttir, fulltrúi Innovit og Davíð Ingi Magnússon, laganemi og frumkvöðull.

Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á www.snilldarlausnir.is.


FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.