Fréttir
07.12.2011
Stjórntölva fyrir matvælaiðnaðinn tekin í notkun
Í nóvember var nýja M6215 stjórntölvan fyrir matvælaiðnað tekin í notkun. Um er að ræða nýjustu gerð af snertiskjá sem hentar til notkunar á öllum Marel tækjum.
M6215 var þróuð til notkunar við skýrslugerð, gæðaeftirlit, öflun upplýsinga og stjórnunar á verksmiðjugólfinu þar sem aðstæður krefjast öflugrar stjórntölvu sem auðvelt er að þrífa og er lipur í notkun. Tölvan er framleidd úr efnum sem fengið hafa viðurkenningu bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitsins (FDA) til notkunar í matvælaiðnaði. Hún keyrir á Windows 7 stýrikerfinu, er hýst í ryðfríu stáli og er stjórnað með snertiskjá sem aðuveldar starfsfólki á gólfinu að tengjast Innova og öðrum framleiðslustýrikerfum.
Nánari upplýsingar um M6215 stjórntölvuna er að finna hér


