Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Fréttir

05.06.2012

Veiting kauprétta

Stjórn Marel hf. ákvað á fundi sínum 4. júní 2012 að veita framkvæmdastjórn félagsins og lykilstarfs­mönnum kauprétti að allt að 11 milljónum hluta í félaginu.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma.  Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel þann 29. febrúar 2012, en áður hafði verið samþykkt á aðalfundi félagsins árið 2010 að heimila stjórn að gefa út allt að 45 milljónir nýrra hluta í tengslum við kaupréttarsamninga við starfsmenn.  

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur að hlutabréfum á grunnverðinu EUR 0,967 á hlut1 sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna.
  • Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk í október/nóvember 2015, síðan 20% árið 2016 og loks 20% árið 2017. Starfsmenn geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2018, þegar samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður á sama tíma.
  • Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga að fullu í eigu Marel) á nýtingardegi.

Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd kaupréttarsamningunum en starfsmenn geta óskað eftir viðskiptum án þess að að leggja fram fjármagn (e. cashless exercise) sé keypt og selt samtímis.

Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að eru 33,2 milljónir og er þá meðtalin þessi nýja útgáfa kaupréttarsamninga. Heildarkostnaður félagsins vegna samninganna næstu 5 árin er áætlaður um 1,4 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes.

Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn og framkvæmdastjórum iðnaðarsetra og sölu- og þjónustu:

Nafn
Staða
Nýr kaupréttur
Fyrri og ónýttur kaupréttur
Eignarhluti í eigin nafni og /eða  tengdra aðila
Theo Hoen
Forstjóri
600,000
2,350,000
1,500,000
Erik Kaman
Fjármálastjóri
450,000
1,850,000
1,675,000
Sigsteinn P. Grétarsson
Aðstoðarforstjóri
450,000
675,000
25,997
Anton de Weerd
Framkvæmdastjóri
315,000
1,100,000
0
Jon B. Gunnarsson
Framkvæmdastjóri
210,000
100,000
0
BertJan Hardenbol
Framkvæmdastjóri
210,000
125,000
0
David Wilson
Framkvæmdastjóri
210,000
50,000
0
Petur Gudjonsson
Framkvæmdastjóri
315,000
850,000
114,430

1. Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 1. júní 2012, þ.e. ISK 156 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 161,35.

FyrriNæsta


Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.