Fréttir
19.09.2011
Velheppnuð kjötsýning í Aarhus
Fyrsta Marel Kjöt ShowHow sýningin var haldinn 14. september í Aarhus. Um 200 gestir mættu til Aarhus og fengu að sjá mikið úrval af því sem Marel hefur fram að færa fyrir kjötiðnaðinn. Frá Íslandi mættu 3 aðilar og sáu margt og skemmtu sér vel.
Allan daginn voru kynningar á hinum ýmsu lausnum og búnaði sem Marel getur boðið í dag og þar má meðal annars nefna:
- Streamline úrbeiningarlínan ásamt Innova hugbúnaðalausninni sem tryggir rekjanleika afurða.
- DMM 10 sem nær kjöti af beinum sem til falla við úrbeiningu. Dæmin sýna að allt að 25% af þessara beina er gæðakjöt sem nýtist vel í ýmsar afurðir s.s. pylsur, hamorgara o.fl.
- Value spray marineringarvélin – marinerar kjöt með spíssum og hámarkar nýtingu á marineringarefni,
- WPL9000 lína frá Delford ásamt límmiðalausnum – Verðmerkivogir og límmiðavélar af ýmsum gerðum.
- Ýmsar gerðir skurðarvélalausna
- Ýmsar gerðir „Skinnera“ s.s. himnuskinner og Pork skinner.
Nokkuð ljóst er að svona sýning er komin til að vera og má því búast við endurtekningu að ári.


