Leiðandi á alþjóðamarkaði í þróun
hátæknibúnaðar fyrir matvælaiðnaðinn


Úr vinnslunni

Afskurður minnkaði um helming

Esja merkiEftir að Marel festi kaup á nokkrum framúrskarandi fyrirtækjum á undanförnum árum hefur vöruframboð fyrirtækisins aukist verulega.


Marel býður nú meðal annars upp á besta tækjabúnað sem völ er á fyrir frekari vinnslu, undir merkjum Townsend Further Processing. Townsend er eitt virtasta vörumerkið í greininni, einkum þegar kemur að búnaði til að móta og hjúpa hráefni – hvort sem um er að ræða fisk, kjúkling eða kjöt – sem og í eldunarbúnaði og pylsugerðarkerfum.

Vilbergur Flóvents Sverrisson,
framleiðslustjóri Esju
Marel státar nú einnig af Townsend skinner, tæki sem sker húð og himnur af kjöti af mikilli nákvæmni þannig að ekkert af verðmætu hráefninu fer til spillis. Þegar Ray Townsend fann „skinnerinn“ upp í lok seinni heimsstyrjaldar í Bandaríkjunum umbylti það meðhöndlun á kjöti á þessu sviði. Tækið hefur verið í stöðugri þróun síðan og nýjustu módelin byggja á þekkingu og reynslu sem safnast hafa upp á meira en 60 árum. Og það leynir sér ekki.

Afskurður minnkaði um helming
"Tækið sker bara himnuna af en áður fyrr, þegar þetta var gert í höndunum, fór alltaf töluvert af kjöti með"
Stórbætt nýting

Esja kjötvinnsla, sem er með aðsetur í Dugguvogi í Reykjavík, hefur aukið áhersluna á vélvæðingu á síðustu árum og keypti meðal annars Townsend skinner frá Marel á síðasta ári. Tækið hefur skilað sér í stórbættri nýtingu í vinnslu á svína- og nautakjöti.

„Í svínakjöti hefur afskurður minnkað um 50% eftir að við fengum skinnerinn, sem hefur reynst okkur mjög vel,“ segir Vilbergur Flóvents Sverrisson, framleiðslustjóri Esju. „Tækið sker bara himnuna af en áður fyrr, þegar þetta var gert í höndunum, fór alltaf töluvert af kjöti með. Þetta skiptir verulegu máli þegar um er að ræða vöðva sem kosta frá kr. 1.500 uppí kr. 2.500 á kílóið þannig að tækið borgar sig upp á skömmum tíma.“

Vélvæðing og aukin sjálfvirkni hafa skipt gríðarlegu máli fyrir kjötvinnslu á Íslandi, að mati Vilbergs. „Vélvæðing gerir það að verkum að hraðinn er orðinn miklu meiri og nákvæmnin líka, sem til lengri tíma litið skila sér í lægra verði. Gæðin aukast að sama skapi því vélarnar framkvæma hlutina yfirleitt eins á meðan mannshöndin getur verið misjöfn.“

Markaðurinn biður um fullvinnslu

Esja þjónar fyrst og fremst veitingahúsum og mötuneytum í skólum og stofnunum. Fyrirtækið er með fullvinnslu og eldhús í sér húsnæði þar sem það framleiðir meðal annars tilbúna rétti, auk þess að undirbúa og forsteikja mat fyrir stór mötuneyti.

 „Ég held að markaðurinn komi til með að þróast áfram í þessa átt og að fullvinnsla á matvælum verður almennt meiri. Það er meiri hraði í þjóðfélaginu og markaðurinn er að biðja um það. En gæðin þurfa jafnframt að vera í lagi.“

Esja flutti í núverandi 1.000 m2 húsnæði í Dugguvogi fyrir um áratug og er búið að sprengja það utan af sér. Fyrirtækið hyggur á flutning í stærra húsnæði á næsta ári og þá mun tækifæri gefast til að bæta ferla og auka sjálfvirkni enn frekar. „Það er markvisst átak hjá okkur að fækka handtökum í vinnslunni enda verður sífellt erfiðara að finna faglært starfsfólk,“ segir Vilbergur að lokum.

Frekari upplýsingar um Esju kjötvinnslu er að finna á vef fyrirtækisins www.esja.is



Please note: The information on this site and its use are subject to a Legal Notice. This site uses Cookies which are further detailed in that notice.

Marel is the leading global provider of advanced equipment, systems and services to the fish, meat and poultry industries. Our brands – Marel, Stork Poultry Processing and Townsend Further Processing – are among the most respected in the industry. Together, we offer the convenience of a single source to meet our customers’ every need. With offices and subsidiaries in over 30 countries and a global network of more than 100 agents and distributors, we work side-by-side with our customers to extend the boundaries of food processing performance.